Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Page 4
6
14. Samin og send Búnaðarfélagi íslands fjárhagsá-
ætlun fyrir árið 1922.
15. Eftir tilmælum frá Búnaðarfélagi íslands voru gerð-
ar fóðurtilraunir á 24 ám; tilraunaskeiðið stóð í 12 vikur
og ánum skift í 3 flokka, einum fl. gefið hey, öðrum hey
og rúgmjöl og þriðja hey og síldarmjöl. Búnaðarfélaginu
sendar skýrslur um tilraunirnar.
16. Eftir ósk frá sama félagi, skrifaði stjórnin öllum
búnaðarfélögum á sambandsvæðinu, um að taka sem mest-
an þátt í væntanlegri búsáhaldasýningu, auk þess var farið
fram á við nokkra elnstaka smiði, að smíða muni og
senda til sýningarinnar.
17. Ársrit sambandsins er gefið út og liggur væntan-
lega fyrir fundinum.
18. Herfingar fara fram í Vopnafirði og Ströndum á
þessu sumri, og plægingar og herfingar á Fljótsdalshéraði
eftir því sem hægt verður að sinna.
19. Að tilhlutun Búnaðarfélags Islands var útveguð
sumarvist,. nokkrum dönskum verkamönnum á sambands-
svæðinu, en er til reyndar kom, komu að eins tveir menn.
Af þessu stafaði nokkur kostnaður og fyrirhöfn, og þó sér-
staklega óþægindi, sem sérstaklega stafaði af því hversu ó-
ábyggileg tilboðin reyndust, sem að sjálfsögðu var að
kenna óhentugum skipaferðum, sóttvarnarráðstöfunum o. fl.
20. á árinu hafa verið skrifuð 84 bréf, auk bréfa, þó
nokkurra, sem ekki hafa gefið beint tilefni til að vera bók-
færð.
21. Stjórnarfundir hafa verið haldnir 10 á árinu.
22. Fjárhagsvonir sambandsins á árinu eru:
Frá Búnaðarfélagi íslands . . kr. 6000,00
— Sýslusjóðum..............a: — 1200,00
Flyt d: kr. 7200,00