Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 19

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 19
21 haustið. Eg sá kynbótaféð á Hafursá í ferðinni, og mér líkaði það fremur vel að öðru leyti en því, að ærnar voru nokkuð sundurleitar — sem líklegt er þegar þær eru komn- ar úr ýmsum áttum. Þessa fjárræktarbús mun síðar verða nákvæmlega getið við annað tækifæri. I þessum hreppum, er hér um ræðir, virtist mér fé yfir- leitt iiijög svipað að vexti og vænleik, og því er lítil ástæða til þótt eg tilgreini fé einstakra manna sérstaklega. Mér þótti fé Eyjólfs Jónssonar í Mjóanesi, sem komið er út af þingeyskum hrút í aðra ættina — mjög hreystilegt og laglegt á fæti. Nikulás Jónsson, Gunnlaugsstöðum á fremur bráðþroska fé undan aðkeyptum hrút, frá Áreyjum í Reyð- arfirði. Og Jón Bergsson á Egilsstöðum hefur plantað stórt og fremur fallegt fé, út af norðlenskum hrútum, er hann hefur notað í nokkur ár. Hinn næsti og síðasti hreppur í Fljótsdalshéraði, er eg skoðaði fé í í þessari ferð, var Skriðdalshreppur. Sauðfé þar er mjög áþekt því, sem er í Skógum og á Völlum, enda eru afréttir þessara hreppa að nokkru leyti samgöngu- lönd og önnur aðstaða gagnvart fjárræktinni lík á báðar hliðar. Einna vænst fé þar sá eg á Vaði, hjá Sigurði Björnssyni, Ögmundi Ketilssyni, Eyrartegi, og Pétri Jóns- syni í Geitdal. Úr Skriðdal fór eg yfir í Breiðdalinn. Það er fremur stór sveit, og þar eð tíminn var heldur naumur, gafst mér ekki tóm til að ferðast um hana alla; en fór út austan megin Breiðdalsár inn Austurdal, svonefndan. I Breiðdalnum mun fé vera viðlíka vænt og í síðast- nefndum h eppum á Fljótsdalshéraði, en ærið misjafnt manna á meðai. Gerðarlegast fé þar sá eg í Höskuldsstaðaseli, á Þorvaldsstöðum og Þverhamri. Nokkrir þændur í Breiðdal hafa gert fjárbótatilraunir með þingeyskum hrútum eða fé út af þeim, er hafa reynst

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.