Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 34
Til sambandsdeilda,
Umsóknir til Sambandsins er hentast að komnar séu
til formanns stjórnarinnar fyrir janúarmánað rlok ár hvert
vegna þess, að í febrúar skipar stjórnin störfum Sambands-
ins fyrir líðandi ár, s. s. pantanir verkfæra, áburðar, út-
sæðis og girðingarefni, leiðbeiningaferðir ráðunauts og fé-
lagsjarðyrkju og það anna“%, sem fyrir liggur.
Umsóknir geta verið m. a. um eftirtalin atriði og störf.
1. Búnaðarnámskeið, Um undirbúning og fyrir-
komulag þeirra er að sjá í Ársriti Sambandsins 1918—’19,
bls. 65—66.
2. Félagsjarðyrkja. (plægingar og herfingar). Um
fyrirkomulag hennar er aðallega að sjá í aðalfundargerð
síðasta Á srits 1920—’21.
3. Verðlaun fyrir góða hirðingu áburðar. —
Sjá um þau í Ársriti Samb. 1918—’19 bls. 66.
4. Svarðleitir, Sambandið ræður mann, og leggur
til jarðbor til svarðleita, hjá þeim meðlimum sambands-
deilda, sem þess óska, og g eiðir ferðakostnað hans deilda
á milli, en viðkomendur greiði honum það dagkaup, sem
hann er ráðinn fyrir, og veita honum ókeypis beina með-
an á leit stendur. Alt með þeim nánari ákvæðum, sem
samþ. hafa verið.
5. Verðlaun úr jarðræktarsjóði Sæbjarnar