Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 24
okt., og hefi eg látið þeirra all ítarlega getið í skýrslu til
Búnaðarfélags íslands.
Frá þeim tíma til 11. d,asember dvaldist eg að mestu
í Reyöarfiðri við skýrslugerðir og ýmiskonar útréttingar
fyrir sjálfan mig og sambandið. En að þeim tíma liðnum
fór eg í fjárskoðanatúr til Norðfjarðar, Eskifjarðar og Helgu-
staðahrepps, og var í þeirri ferð fast til hátíða.
í Norðfjarðarhreppi varð minna úr fjárskoðunum fyrir
mér en til hafði verið ætlast, orsökin til þess var sú, að
'énaður var þá ókominn á hús, nema hrútar, og þá sá eg
á flestum bæjum. Einna bezt leist mér á hrúta þar á
Skorrastað, Kirkjubóli, Framskálateigi og Skuggahlíð.
I Eskifiröi og Helgustaðahreppi sá eg fénað allan á
flestum heimilum; og sýnist mér að Fr ðgeir kaupm. Hall-
grímsson mundi eiga vænsta féð þar, Ólafur Helgason á
Helgustöðum og Árni Jónasson á Svínaskála; en vænstan
hrútinn á þessu svæði átti Tryggvi Hallgrímsson fyrv.
póstur, og var sá hrútur kominn útaf þingeysku fé í aðra
ættina.
Eftir hátíðarnar byrjuöu svo fjárskoðanir í Fljótsdals-
héraði, og þegar hér var komið sögunni, hefi eg ferðast
um eftirfarandi hreppa: Fell, Tungu, Hlíð og Jökuldal og
á væntanlega ófarið enn á þessum vetri, um Vopnafjörð og
Strandir. En skýrslur yfir þessi ferðalög birtast væntan-
lega í næsta ársriti sambandsins, og læt eg því hér staðar
numið aö sinni.
Reyðarfirði 28. febr. 1922.
Lúdvík Jónsson.