Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 21

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 21
23 varð ekki eins víðtæk í þessum hreppum og til var ætlast, læt eg hjá líða að láta fjárræktarinnar þar nánar getið. Frá Hornafiröi fór eg með „Drífunni" 5. maímánaðar til Reyðarfjarðar, og hefi eg þá verið 2 mán. í ferðinni. Þegar hér er komið sögunni kvisaðist það fljótt, að umgangsveiki sú er „Inflúensa" heitir, væri á Seyöisfirði, og þaðan barst hún út á nokkur heimili á Fljótsdalshéraði. En tii þess að forðast meiri útbreiðslu hennar, var sam- göngubann sett milli Reyðarfjarðar og Héraðs og annara Austfjarða, er frést hafði til veikinnar. Þetta samgöngu- bann stóð yfir í 5 vikna tíma og olli sambandinu, sem al- menningi, er bannið náði til, ýmsra óþæginda. Eins at- riðis skal að eins láta getið í þessu sambandi og það er áburðartilraunir, er nokkur búnaðarfélög á sambandssvæð- inu ætluðu að framkvæma. Sambandið útbýtti 25 pd. af köfnunarefnisáburði til 12 búnaðarfélaga í því skyni, aðgera samkynja áburðartilraunir á tún — fyrri og seinni slátt — en áburöurinn komst víða ekki til skila, sökum bannsins, fyrr en um seinan, til þess að hægt væri að framkvæma fyrri tilraunina; og þar eð háarvöxtur brást all víða hér eystra síðastliðið sumar, má heita, að báðar tilraunirnar séu mislukkaðar og þær verði að endurtakast á næsta ári eða síðar, ef þær eigi að ná tiigangi sínum, að sýna gildi þess áburðar fyrir túnræktina. Það, er næst lá hendi í verkahring ráðunauts, var, að sækia hina fyrirhuguðu búsáhalda ýningu í Reykjavík. í það gekk mánaðartími. Með því að sýningunni hefur all- ýtarlega verið lýst í blöðum og tímarítum, sé eg ástæðu- laust að láta hennar hér nánar getið. Það eitt skal tekið fram, að tilgangur fararinnnar var aðallega sá að kynnast njftízku verkfærum, er kynnu að vera á sýningunni og festa kaup á einhverjum þeirra eða öðrum áhöldum, sem mjög gagnleg væru fyrir sambandið. Og á sýningunni keypti eg

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.