Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 26

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 26
28 Hér fer á eftir sýnishorn af efnasamsetning nokkurra algengustu fæðutegunda vorra: E«gjahv. Fita Kolvetni Tréefni Salt. Vatn Nautakjöt 22,5 4,5 i» »» 1,2 71,8 Þorskur 16,0 0,5 »» ? ? Rúgmjöl 10,0 1,0 74,0 0,5 0,5 14,0 Kartöflur 2,0 »» 20,0 1,0 1,0 76,0 Kúamjólk 3,7 4,4 3,5 »» 0,8 87,6 Taflan sýnir, að með samanburði á korni og kartöfl um, mun rúgmjölið hafa sem næst 3,5 sinnum meira nær- ingargildi en kartöflurnar. En nú er þess að geta, að kar- töflurnar eru mun drýgri og Ijúffengari matur í bú að leggja en kornið; svo hið eiginlega notagildi þeirra er hlutfalls- lega miklu meira heldur en ofangreindur samanburður sýnir, þegar alt kemur til sögunnar. Eg hef líka heyrt gamla heimilisfeður segja, að þeir teldu ekki vanreiknað, að leggja * hálfa þriðju tunnu af kartöflum til búsins, móti einni rúg- tunnu. Ef um hagnýtan og hollan kost er uð ræða, kemur fyrst til greina efnablöndun fæðunnar. Odýr og góð fæða hefur efnasamsetning í réttum hlutföllum við líkamsþarfirnar. En eftir því sem talið er, eiga næringarefnahlutfölhn í daglegri fæðu fullorðins manns að vera sem hér segir: 120 g . eggjahvíta, 60 gr. fita og 500 gr. kolvetni (sykurefni). Ef nú er litið á töfluna, þá sést, að aðal næringargildið í nautakjöti og þorski er innifalið í eggiahvítuefnum og fitu og ekki í kolvetnum, sem vér þörfnumst þó mest af í fæðunni. En þau eru hlutfallslega langmest í kartöflum og rúgmjöli. Þess var áður getið, að allar nauðsynjar okkar í korn- vörum þyrftu að koma frá útlöndum, því um kornyrkju væri vart að tala í landinu; en því meiri ástæða er þá ekki

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.