Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 27

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Blaðsíða 27
29 fyrir oss, að fullnægja þörfum vorum í kartöfluræktinni? Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þótt kc rtöflurækt- in hér á landi allvíða gefi 10—20 falda uppskeru, er í hvaða landi sem vera skal má heita allgó !ur vöxtur, þá eru ár- lega fluttar til landsins kartöf ur fyrir marga tugi þúsunda króna. Mikið mun þó ávanta, að kartöfluneyslan hjá oss sé eins mikil og hjá nágrannaþjóðum vorum; er sú ályktun mín þó ekki bygð á neinum hlutfallstölum, heldur lítilli eigin reynslu. í þau 8 ár, sem eg dvaldist erlendis (í Danmörk og Bretlandi) man eg ekki til að liði sá dagur, sem kartöflur voru ekki á borð bornar. Þar virtist mér era sú regla, sem eg þekti til, að skamta kartöflur til miðdags alt árið í kring með einhverskonar kjöt- eða fiskrétti, og auk þess voru kartöflur stundum hafðar í spónamat — sem fyrir eða eftirréttur við miðdagsborðið. Mér er enn í fersku minni eitt litiö atvik. sem fyrir kom í Lundúnaborg sumarið 1917 er eg dvaldist þar. Það kvisaðist þá einn góðan veð- urdag að kartöflubirgðirnar í landinu væru að þrotum komnar og kartöflur væru ekki í bili fáanlegar neinstaðar að, af hernaðarsökum. Við þessar fregnir ætluðu hús- mæðurnar alveg að komast í bobba með matreiðsluna, því þær gátu ekki hugsað sér neinn mat á borð að leggja stað kartaflanna; að skamta brauð eða annan kornmat í allar máltíðir með kjöti og fiskrétti, það fanst þeim ekki geta gengið, fyrst og fremst af þeirri einföldu ástæðu, að það var óhófleg matareyðsla og í öðru lagi hitt, að það þótti alt of kröftug fæða. — Reyndar kom aldrei til þess, að kartöflurnar þrytu í þetta sinn í borginni, en ekki man eg á hvern hátt rættist úr hinum yfirvofandi vandræðum húsmæðranna. Mér er því miður ekki vel ljóst um kartöfluneyzluna alment hér á landi. en að svo miklu leyti sem eg til þekki

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.