Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1920, Side 23
25
þess var sáð í lítinn blett, er af gekk, fræblöndun af há-
liða- og vallarfaxgrasi.
Allar þessar frætegundir voru útlendar. að einni und-
anskilinni (hásveifgrasi), er safnað var á Hallormsstað und-
anfarið sumar. Quttormur Pálsson, bóndi á Hallormsstað
lét þetta fræ til ókeypis og bauð sambandinu jarðnæði
undir tilraunirnar ásamt aðstoð sinni við þær e'tir megni.
Sambandið á Quttormi því mikið að þakka það, að tilraun-
irnar eru komnar í það horf, sem orðið er.
Frá 22. ágúst til 10. september ferðaðist eg um Hjalta-
staðaþinghá, Vopnafjörð og Strandir.
í Hjaltastaðaþinghá mældi eg fyrir girðingum á þess-
um bæjum í Dölum, Sandbrekku og Hrolllaugsstöðum, og
leit á engjar til framræslu og áveitu á: Kórek stöðum,
Jórvík, Bóndastöðum og Dratthalastöf um.
í Strandahreppi athugaði eg áveituengi á 6 bæjum:
Skeggjastöðum, Djúpalæk, Miðfjarðarnesi, Saurbæ, Felli og
Bakka, og mældi engjastykki á Skeggjastöðum og jarða-
bætur á 15 bæjum í hreppnum.
í Vopnafjarðarhreppi mældi ég fyrir áveitu á Torfa-
stöðum, en leit á engjar til áveitu á Egilsstöðum og Hofi
Einnig yfirleit eg áveitufyrirtæki að Bót í Tungu, í baka-
leiðinni.
Frá 11.—20. september vann eg að undirbúningi hrúta-
sýninga, er boðaðar voru á suðurhluta sambandssvæðisins
— frá Öræfum til Norðfjarðar, og á suðurleið til sýninga-
haldsins vann eg að áveituathugunum á Geithellum og
Bragðavöllum í Álftafiröi; einnig áætlaði eg hvort gerlegt
mundi vera að hlaða fyrir Selá, svo nefnda, er liggur við
að eyðileggi stórt engjasvæði á Starmýri í sömu sveit.
Og fyrir flóðgörðum, á Höskuldsstöðum í Breiðdal og
Hólum í Hornafirði, var einnig mælt í þessari ferð.
Við hrútasýningar vann eg frá 21. september til 22.