Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1975, Blaðsíða 7
LANDSBÓKASAFNIÐ 1974
7
ur hljóðdeildar (Nationalfonoteket) Konunglega bókasafnsins í Stokkhólmi hingað
snögga ferð seint í janúar til að athuga aðstæður í Landsbókasafni vegna fyrirhug-
aðrar gjafar upptöku- og hljómburðartækja þeirra, er hér um ræðir.
Sendiherra Bandaríkjanna á Islandi, Frederick Irving, afhenti þriðjudaginn 17. sept-
ember í Landsbókasafni merka bókagjöf, en hún var ein þeirra gjafa, er fulltrúi
Bandaríkjastjórnar á þjóðhátíðinni fyrr um sumarið, Rogers C. B. Morton innanrík-
isráðherra, tilkynnti, að Bandarikjamenn hygðust gefa íslendingum í tilefni af 11
alda afmæli íslandsbyggðar.
Meginhluti umræddrar gjafar er safn Ijósprentaðra rita frá fjögurra alda skeiði
amerískrar sögu 1493-1893. Safnið nefnist The March of America Facsimile Series,
hundrað bindi alls auk bókfræðilegrar greinargerðar í sérsöku bindi. Rit safnsins ná
allt frá skýrslu Kolumbusar um hinar nýfundnu eyjar, prentaðri í Róm 1493 (Col-
ombo, Cristoforo. Epistola de insulis nuper inventis), til hins kunna verks um þátt
jaðrabyggðarinnar í amerískri sögu eftir sagnfræðinginn Frederick Jackson Turner,
prentaðs í Washington 1893 (The Significance of the Frontier in American History).
En sameiginlega er ritum safnsins ætlað að bregða í frásögnum og lýsingum samtíðar-
manna hverju sinni margvíslegri birtu yfir þróun amerísks samfélags á fyrrnefndum
fjögurra alda ferli þess.
Rit þau, er valin voru í safn þetta, eru flest afar fágæt og léð til prentunar í þessu
skyni úr söfnum sem The William L. Clements safninu við Michiganháskóla, þjóðbóka-
safni Bandaríkjanna (Library of Congress) og bókasafni Princetonháskóla.
Fyrir hverju bindi fer formáli, saminn á vegum Folger Shakespeare safnsins í Wash-
ington, og er þar gerð sérstök grein fyrir bindinu og stöðu þess í bókmenntum síns
tíma.
Auk hins ljósprentaða safns, sem hér hefur verið vikið að stuttlega, eru í gjöfinni
nokkur veigamikil rit frá síðustu árum um Bandaríkin og bandarísku þjóðina.
Dr. Paul H. T. Thorlakson, fulltrúi Kanadastjórnar á 11 alda afmælishátíðinni,skýrði
frá því mánudaginn 29. júlí, að hátíðargjöf Kanadamanna yrði fjölbreytt safn rita
um Kanada og kanadísku þjóðina og yrði gjöfinni beint til Landsbókasafns íslands.
Þessi góða gjöf hefur borizt í áföngum til landsins nú á þessu ári, og verður vænt-
anlega skýrt nánara frá henni, þegar hún er öll komin.
Fproya Landsbókasavn sendi Landsbókasafni Islands að gjöf Seyðabrævið svo-
nefnda frá 1298 í fagurri ljósprentaðri útgáfu.
Seyðabrævið var réttarbót Hákonar hertoga Magnússonar til handa Færeyingum,
en texti bréfsins er einkum varðveittur á tveimur skinnhandritum frá miðöldum,
öðru íslenzku, og eru bæði varðveitt í Svíþjóð.
I bréfi, er Sverri Egholm landsbókavörður Færeyinga ritaði með gjöfinni, segir, að
hún sé send „í sambandi við 1100 ára tjóðarhátíð íslendinga . . . við bestu kvöðu okk-
ara við ynskinum um eyðnugóða framtíð í menningarstarvssemi íslendsku tjóðar-
innar“.
Jákup Lindenskov, fulltrúi Færeyinga á 11 alda afmælishátíðinni í fyrra, skýrði frá