Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1975, Blaðsíða 19
LANDSBÓKASAFNIÐ 1974
19
STARFSLIÐ Haraldur Sigurðsson bókavörður var í launalausu orlofi fró árs-
byrjun og til júlíloka. Helgi Magnússon B. A. gegndi störfum Har-
alds í fjarveru hans, en hann var síðan settur bókavörður við safnið frá 1. október
1974 að telja og kom í stað Ásgeirs Hjartarsonar, er lézt 24. júlí, eins og skýrt var frá
í síðustu Árbók. Við fráfall hans tók þó Halldór Þorsteinsson bókavörður við gjald-
kerastarfi því, er Ásgeir hafði gegnt um langt árabil ásamt öðrum störfum sínum við
safnið.
Tryggvi Sveinbjörnsson bókbindari, er var settur forstöðumaður bókbandsstofu
safnsins 1. júni 1973, var skipaður forstöðumaður hennar frá 1. júní 1974.
Birna Jónsdóttir var á árinu ráðin aðstoðarbókbindari hálfan daginn.
Sjöfn Kristjánsdóttir B. A. var lausráðin frá ársbyrjun til ágústloka og annaðist
einkum gæzlustörf á aðallestrarsal.
Dr. Uno Willers ríkisbókavörður Svía bauð nokkrum hóp starfsbræðra frá Norður-
löndum og víðar að til þriggja daga dvalar í Stokkhólmi 20.-22. maí, en þá skyldi
vígja m. a. nýja bókalyftu í Konunglega bókasafninu og miklar bókageymslur, er það
og fleiri rannsóknarbókasöfn nýta sameiginlega að Bálsta norðan Stokkhólms.
Undirritaður sótti þennan fund, er var í hvívetna hinn fróðlegasti.
FRUMVARP TIL Hinn 18. janúar var Menntamálaráðuneytinu sent samkv. tilmæl-
LAGA UM SKá LDU- um þesg j j,refj 14 desember 1973 frumvarp til laga um skyldu-
SKIL TIL SAFNA . , ,. ° * Al ,
skil til safna. Að samnmgu þess unnu undirritaður, Ulalur
Pálmason deildarstjóri í Landsbókasafni og Knútur Hallsson skrifstofustjóri í Mennta-
málaráðuneytinu.
Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi, en ekki verið afgreitt ennþá.
í greinargerðinni segir svo m. a.:
„I frumvarpi því til laga um skylduskil til safna, sem hér er lagt fram, er þess freist-
að í upphafi að skýrgreina, hver sé raunverulegur tilgangur slíkra laga. En þeir að-
ilar, sem skilaskyldir hafa verið samkvæmt lögum um afhending skyldueintaka til
bókasafna, samþykktum á alþingi 24. febrúar 1949, hafa oft knúið á um það undan-
farið, að lögin yrðu endurskoðuð og þá ekki sízt að því er varðaði tilgang þeirra og
þar af leiðandi fjölda skyldueintaka.“
I frumvarpinu er tilgangur skilaskyldunnar talinn vera sá að tryggja:
a) að unnt sé að varðveita til frambúðar það efni, sem skilaskylda nær til;
b) að unnt sé að gefa út tæmandi skrár um þetta efni eða tiltekinn hluta þess;
c) að efnið geti verið tiltækt til nota vegna rannsókna, opinberrar stjórnsýslu og ann-
arra réttmætra þarfa.
I frumvarpinu er gert ráð fyrir, að skyldueintökin verði fjögur og verði tvö þeirra
varðveitt í Landsbókasafni (notkunareintak og geymslueintak), eitt gangi til Háskóla-
bókasafns og annað til Amtsbókasafnsins á Akureyri.
I frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir því, að prentsmiðjur afhendi Landsbókasafni