Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Blaðsíða 66
66
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
Bárum, Ullr, of alla,
ímunlauks, á hauka
fjöllum Fýrisvalla
fræ Hákonar ævi.
Sem sé: Við bárum, Ullr ímunlauks (herskái maður), of alla ævi
Hákonar Fýrisvalla fræ, þ.e. gull, á hauka fjöllum: höndum, örmum
(haukurinn, veiðifuglinn, situr á armi manns).
En seinni hluti vísunnar er á þessa leið:
Nú hefr folkstríðir Fróða
fáglýjaðra þýja
meldr í móður holdi
mellu dolgs af folginn.
Þ.e. folkstríðir (Haraldur konungur, sem er erfiður fólki sínu) hefur
fólgið meldr (o'.mjöl) fáglýjaðra þýja Fróða: hinna lítt glöðu ambátta
Fróða, sem sé gull, í holdi móður mellu dolgs. Mella er gýgur, skessa,
dolgr (óvinur) hennar er Þór (er barði á tröllum) og móðir hans Jörð.
Skáldið segir því: Aður launaði (Hákon) konungur skáldunum
gulli, en nú grefur (Haraldur) konungur það í jörðu.
Seinna erindið hljóðar á þessa leið:
Fullu skein á fjöllum
fallsól bráa vallar
Ullar kjóls of allan
aldr Hákonar sköldum.
Nú es alfröðull elfar
jötna dolgs of folginn,
ráð eru ramrar þjóðar
rík, í móður líki.
Fallsól bráa vallar Fullu: sól sú, er skín af enni (gyðjunnar) Fullu:
höfuðband Fullu (er var úr gulli): gull, en það skein á Ullar kjóls
(skjaldar) fjöllum: þ.e. á örmum skálda of allan aldr Hákonar. Nú es
alfröðull elfar (gull) offolginn í líki (líkama) móður jötna dolgs, þ.e. í
líkama Jarðar, móður Þórs: í jörðu; ráð ramrar þjóðar eru rík.