Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Blaðsíða 79
LANDSBÓKASAFNIÐ 1986
79
VESTURHEIMS- Út var gefin á árinu skrá um rit á íslenzku
PRENT prentuð vestan hafs og austan af Vestur-
íslendingum eða varðandi þá. Ólafur F.
Hjartar, deildarstjóri í safninu, tók skrá þessa saman og gerir grein
fyrir henni í inngangi. Sjálf skráin er um 80 tvídálka síður í stóru
broti. Fyrst fara rit prentuð í Vesturheimi, síðan rit prentuð á íslandi
eða annars staðar austan hafa, og loks er efnisskrá, er sýnir, hvað
prentað hefur verið um einstök efni.
í stuttum formála landsbókavarðar kom fram, að skráin var gefin
út í tilefni af aldarafmæli vikublaðsins Heimskringlu, er hóf göngu
sína í Winnipeg 9. september 1886. Þá er þess og getið, að
Morgunblaðið og Prentsmiðjan Oddi hafi stórlega stutt Landsbóka-
safn til útgáfu skrárinnar, hún verið sett og brotin um hjá blaðinu, en
Oddi síðan prentað hana og heft.
Skráin er merkileg heimild um bókmenntir, sögu og félagslíf
landanna vestra, svo sem þetta birtist í ritum þeirra á íslenzku, en
sýnir jafnframt áhuga íslendinga hér heima á þessum efnum og hvern
þátt þeir hafa átt í útgáfu vestur-íslenzkra bókmennta og umfjöllun
um þær.
BÓKAGJÖF TIL
LANDSBÓKASAFNS
GRÆNLENDINGA í
NUUK
Landsbókasafn sendi systursafni sínu í
Nuuk myndarlega bókagjöf, er Matthías
Bjarnason samgönguráðherra aíhenti
þar, en hann var formaður íslenzkrar
sendinefndar, sem þangað fór í tilefni af
milli Nuuk og íslands. Gjöfmni fylgdi
Landsbókasafnsins í Nuuk, dagsett 24.
upphafi beinna flugferða
eftirfarandi bréf mitt til
febrúar 1986:
„Minnugir hinnar miklu bókagjafar, er þér senduð Landsbókasafni
íslands 1983, og í ljósi þess, að á árinu 1986 eru að tali Ara fróða í
íslendingabók hans liðnar tíu aldir frá því er Eiríkur rauði „tók
byggva landit“ (þ.e. Grænland), sendum vér yður nú bókagjöf,
nokkur meiri háttar verk varðandi ísland að fornu og nýju.
Þess skal hér getið með sérstöku þakklæti, að Landsbókasafn
íslands fékk ríflegan styrk úr hinum íslenzka Grænlandssjóði til
kaupa á umræddri bókagjöf.