Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Blaðsíða 77
LANDSBÓKASAFNIÐ 1986
77
DEILD ERLENDRA Starfslið deildarinnar var óbreytt frá síð-
RITA asta ári. Gísli Ragnarsson lauk að mestu
starfi sínu við Samskrá um erlend tímarit
í íslenzkum bókasöfnum og stofnunum, en stefnt er að útgáfu
skrárinnar á árinu 1987.
Guðrún Eggertsdóttir vann að endurllokkun og skrásetningu rita
um stjórnmálaílokka. Þeim var áður skipað samkvæmt Deweykerfí í
329, en fá nú flokkstöluna 324.
Erlendur ritauki reyndist á árinu 1450 verk, bækur, tímarit og
ritraðir, þar af um 415 blöð og tímarit (titlar). Til viðbótar koma
nokkur hundruð rit alþjóðastofnana, sem eru ekki færð í aðfangabók.
Munar þar mest um rit Sameinuðu þjóðanna og rit, er safnið fær í
skiptum frá Bandaríkjastjórn.
Erlend rit um íslenzk efni voru um 300 á árinu, en þar sem þau
voru varðveitt í þjóðdeild og færð sem aðfong hennar, eru þau ekki
innifalin í ritaukatölunni hér að ofan.
STARFSLIÐ Ögmundur Helgason cand.mag. var sett-
ur bókavörður frá 1. janúar, en var í
kauplausu orlofi til 1. apríl.
Þrír bókaverðir voru samkvæmt eigin ósk leystir frá störfum,
Bryndís ísaksdóttir frá fullu starfi 1. júní, Hólmfríður Magnúsdóttir
V2 starfi 1. september og Gunnar Skarphéðinsson V\ starfi 1.
nóvember.
Á árinu voru ráðnar Bergljót Garðarsdóttir Sleight M.A. í V2 stöðu
frá 10. júní og Anna Georgsdóttir í V\ stöðu frá 1. nóvember, en hún
var jafnframt lausráðin í 14 stöðu.
Gunnar Heiðdal húsvörður var samkvæmt eigin ósk leystur frá
starfi sínu 1. marz, en við því tók síðan Ólafur Ólafsson.
Ólafur Ottósson bókbindari lét í árslok fyrir aldurs sakir af starfi
sínu á bókbandsstofu safnsins.
Vér þökkum fráfarandi starfsmönnum vel unnin störf þeirra á
liðnum árum.