Vísbending - 17.06.1995, Side 3
Gull og grjót
- Arnljótur Ólafsson
fyrsti íslenski hagfræðingurinn
eftir Ásgeir Jónsson
Sáttasemjari en ekki dómari
- viðtal við Guölaug Þorvádsson
Þorgeir Kjartansson skráði
5
9
„Guðlaugur hefur sjötta
skilningarvitið“
- segir Guðmundur J.
Þorgeir Kjartansson skráði
Fer heimurinn versnandi?
- Velferðarbyrðin næstu, 100 árin
eftir f3enedikt Jóhannesson
Sigfús í Heklu
• eftir Hannes Hólmstein Gissurarson
12
13
17
Maður er aldrei ánægður
með samninga
- Um samningatækni
eftir Benedikt Jóhannesson
Útgefandi:
Talnakönnun h',
Borgartúni 23, 105 Reykjavík,
Sími: 561 7575, myndsendir: 561 8646,
Ritstjórn:
Ásgeír Jónsson, ritstj. og ábm.,
Benedikt Jóhannesson.
Málfarsráðgjöf:
MáM'sindastofnun Háskólans.
Forsíðumynd:
RagnarTh. Sigurðsson
Umbrot og prentun:
Steindórsprent-Gutenberg.
Upplag:
3,000 eintök,
Öll réttindi áskilin.
Rit þetta má eigi afrita
með neinum hætti án
leyfis útgefanda.
i /
:si orasnia
í þessu sumarblaði Vfsbendingar er meðal annars
fjallað um séra Arnljót Olafsson sem fyrstur
íslendinga skrifaði bók um fræðilega hagfræði.
Arnljótur stóð í nær öllum pólitískum deilum sem
völ var á síðari helming 19. aldar og átti þar í
höggi við helstu stjórnmálaskörunga þjóðarinnar,
Jón Sigurðsson forseta, Benedikt Sveinsson og
valtýinga. Arnljótur var menntaður hagfræðingur
og ril hans er skemmtilegt aflestrar, þar sent
santan fer mögnuð hagfræði og gott málfar. En
bókin er annað og meira. Hún sviðsetur klassíska
hagfræði við íslenskar aðstæður, og sú svið-
setning virðist falla furðuvel að hugarfari þjóðar-
innar og ráðamanna hennar enn í dag, þótt 115 ár
séu síðan bókin kom fyrst út. Saga þjóðarinnar á
tímaskeiðunum 1860 -1895 og frá 1960-1995 á
sér eitt sammerkt: baráttu gegn höftum og forsjár-
hyggju. Mikilvægasta frelsisbaráttan á síðustu öld
var ekki barátta fyrir þjóðfrelsi eða aðskilnaði frá Danaveldi, heldur baráttan fyrir mann-
frelsi og þar stóð Arnljótur í fylkingarbrjósti. Arið 1860 var líf alþýðu á flestan hátt njörv-
að niður undir forsjá valdsmanna, t.d. var fólk bundið fæðingarhreppi sínum og lögskipað
að vera vinnuhjú. Baráttan fyrir frelsi þessa fólks var ekki háð við Dani, heldur við Alþingi
íslendinga sem þá var eitt afturhaldssamasta þjóðþing í Vestur-Evrópu. En nú eru aðeins
um 100 ár síðan Alþingi lögfesti rétt almennings til að kjósa sér atvinnu. Þá var vinnu-
aflinu, helsta framleiðsluþætti landsins, sleppt lausu og þá fyrst fóru hjólin að snúast í
íslensku hagkerli og framsókn þjóðarinnar hófst fyrir alvöru.
Um síðustu aldamót hvöttu þjóðskáldin til djörfungar og dáða í Ijóðum sínum, til frelsis
og framfara, en brátt sló í bakseglin. í erfiðleikum kreppuáranna var landinu lokað, hag-
kerfið varð aftur reyrt í fjötra, og ljármagnskerfinu komið undir handarjaðar Alþingis og
það heft á flestan máta. Fjármagnið sem lagðist til í kjölfar iðnvæðingar var, eins og vinnu-
aflið forðum, fest í ákveðnum farvegi eða atvinnugreinum með lagaboðum og milli-
færslum. Afleiðingamar urðu þær sömu á báðum tímaskeiðum, sóun og fábreyttir atvinnu-
vegir. Frá 1960 hefur önnur frelsisbarátta staðið yfir, gegn höftum og forsjárhyggju, og enn
sem fyrr hefur Alþingi verið eitt íhaldssamasta þjóðþing í Vestur-Evrópu. Séra Arnljótur
hefði hæglega getað staðið í pontu Alþingis á síðustu árum, sem á sinni tíð, og deilt um
sömu grundvallaratriði í hagstjórn og á síðustu öld, en í dag hlyti hann líklega nafnbótina
nýfrjálshyggjumaður. Nokkuð hefur mjakast í þessari baráttu. Aukið frjálsræði í fjár-
magnsviðskiptum hóf fyrst að brjótast fram fyrir 10 árum en ennþá er nokkuð í land.
Við kunnunt að hafa barist fyrir sjálfstæði og staðið vörð unt þjóðfrelsið, en mannfrels-
ið höfum við ekki virt í þeim skilningi að almúginn hefur ekki verið látinn sjálfráður gerða
sinna. Ráðamennirnir hafa alltaf þóst þess untkomnir að geta valið fyrir fólkið, lramleið-
endur sem neytendur, hvað sé þörf og hvað vangá og hvernig fjármunum þeirra skuli var-
ið. Forsjá sem hefur verið þjóðinni fjötur um fót. Þegar vinnuaflið slapp undan forsjá
stjómmálamanna varð mikið framfarastökk í sögu þjóðarinnar og nýir atvinnuvegir byggð-
ust upp. Nú stefnum við inn í nýja öld og fjármagnið virðast vera að losna undan forsjá
Alþingis, og við gæturn vænst álíka framfara og hófust fyrir 100 árum, þótt lítil hvatning
hafi komið frá þjóðskáldum enn sem komið er. En besta leiðin til að vernda sjálfstæði
landsins og menningu þjóðarinnar er, eins og skáldin boðuðu fyrir öld síðan, í gegnum
frelsi og framfarir, þannig að við stöndum jafnfætis öðrum þjóðum. Með það að markmiði
sóttumst við eftir sjálfstæði og þannig munum við halda því. Upp er runninn tími nýrrar
djörfungar og dáða í anda séra Arnljóts.
HOTEL
REYKJAVÍK
Tvö (róö hótel — tveir góðir kostir!
Nýuppgert 7. Jlokks hótel með
100 rúmgóðum herbergjum.
Staðsett í kyrrlátu umhverji
skammt frái Laugardal.
Glœsileg veislu- og
ráðstefnuaðstaða.
Nýtt 60 herbergja Jiótel
í hjarta borgarinnar
Vinsamleg og
persónuleg pjónusta.
Urval góðra matsölustaða
í nœsta nágrenni.
HÓTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38 • Stmi 568 9000 • Fax 568 0675
Rauðarárstíg 37 • Sími 562 6250 • Fax 562 6350
VÍSBENDING
3