Vísbending - 17.06.1995, Page 12
„Guðlaugur
hefur sjötta
skilnínaarvítíð'
Guðmundur jaki býður Guðlaugi í nefið í upphafi þjóðarsáttarsamninga.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, hefur háð
marga rimmuna við atvinnurek-
endur og þekkir vel störf
ríkissáttasemjara. Hann gaf sér
tíma til þess að meta þær breyt-
ingar sem orðið hafa á starfinu:
„Þegar Torfi Hjartarson lét af starfi
ríkissáttasemjara var almennt sú trú í landinu
að enginn gæti tekið við þessu embætti. Hann
var orðinn mjög fullorðinn og búinn að vera
sáttasemjari í langan tíma. Hann var hörkukarl
og skörungur í þessu starfi, maraþonsmethafi í
vökum, glöggur og harðsnúinn. Guðlaugur var
einn þeirra mörgu sem sóttu um starfið. Hann
hafði langmesta reynslu umsækjenda, enda
verið eins konar aðstoðarsáttasemjari og setið
í mörgum sáttanefndum um árabil. Menn
biðu milli vonar og ótta um hver tæki við
þessu embætti, en voru almennt ánægðir þegar
Guðlaugur fékk það.
Hann var ákaflega ólíkur Torfa. Torfi var
svona drumbur, en glöggur karlinn og harður,
átti það til að vera brúlall, en hafði feikilega
hæfni í þetta starf. Þegar Guðlaugur tók við
skipti nokkuð yfir. Torfi neitaði t.d. alltaf að
tala við blaðamenn, rak þá út úr húsinu og
trylltist ef hann sá þá - þá var ekki komin
þessi fjölmiðlaöld sem nú er. Guðlaugur tók á
starfinu af mikilli Ijúfmennsku og ávann sér
traust manna og hylli. Hann var ekki að troða
ákveðnum skoðunum upp á menn, heldur
kannaði hann ákaflega vel viðhorf beggja
aðila og leiddi menn saman með hógværð og
lempni. Ef það var að slá í mjög mikla hörku
þá frestaði hann fundi og þreifaði sig áfram.
Það hefur aldrei nokkur maður brugðið
Guðlaugi um ósannsögli eða óábyggilegheit
allan þann tíma sem hann var sáttasemjari.
Hann stjórnaði þessu ekki með hörku eða
ofsa, var þó býsna drjúgur og ég held að
engum nema sjaldgæfum fyrirbærum hafi
dottið í hug að sýna Guðlaugi ókurteisi. Hann
varð fljótt vinsæll og býsna farsæll í þessu
starfi. Hann sýndi öllum virðingu og kurteisi,
hvort sem það var óvanur samningamaður eða
rútíneraður og kjaftfor samningajálkur. Hann
var oft ótrúlega farsæll í að leiða saman and-
stæð sjónarmið og finna milliveg, sem gat
verið býsna erfitt.
Auk hógværðar og elskulegheita var hann
glöggur og fljótur að setja sig inn í málin,
enda var hann býsna vel kunnugur vinnu-
markaðinum. Bæði naut hann fjölbreytilegrar
starfsreynslu úr fjármálaráðuneytinu, Hagstof-
unni og Háskólanum og svo hafði hann unnið
ýmsa vinnu á námsárunum, þannig að hann
hafði sjálfur reynslu af almennum störfum og
þekkti kjör hins vinnandi manns. Hann var
aldrei tjarlægur maður sem sté olan úr hásæti.
Hann gat hins vegar lagt rnjög fast að mönn-
um þegar svo bar undir, en hann tók vel öllum
tillögum eða ábendingum og oft sá maður þær
koma seinna fram í svolítið breyttri mynd - og
þá var tekið mið af sjónarmiðum beggja aðila.
Það að koma sátt á milli fylkinga sem
standa gráar fyrir járnum er enginn leikur. En
Guðlaugur var aldrei vændur um hlutdrægni,
af hvorugum aðila. Almennt báru menn
jákvæðan hug til hans og marga deiluna leysti
hann, sem maður taldi að væri torleyst. Þar
kom til það sem ég vil kalla sjötta skiln-
ingarvitið. Hann var glöggur og næmur á
áherslur aðila, þreifaði fyrir sér, þangað til
hann fann leið til að láta menn ná saman. 1
þessu tókst honum stundum ótrúlega vel upp.“
INMARSAT og X.400
cc.Mail, DaVinci, LotusNotes, MHS, MSMail, OpenMail
SKÍMA býður tengingar við INTERNET
fyrir einkatölvur eða fyrir tölvunetfyrirtœkja
SKÍMA býður fyrirtækjum hönmm og rekstur heimasíðna á
INTERNET
upplýsingar sem berast heimshoma á milli
ÖRYGGI ~ HRAÐI ~ SPARNAÐUR ~ HAGRÆÐING
12
VISBENDING