Vísbending


Vísbending - 17.06.1995, Blaðsíða 24

Vísbending - 17.06.1995, Blaðsíða 24
Landsvirkjun hefur forystu um aukna nýtingu vatnsafls og jarðhita í sátt við umhverfið öllum til heilla. Odýr umhverfisvæn orka verður hér eftir sem hingað til undirstaða góðra lífskjara á Islandi og framfara á öllum sviðum. Frá stofnun hefur Landsvirkjun fjármagnað uppbyggingu í orkumálum af eigin rammleik með fjármagni úr rekstri og lántökum. Fjárhagslegur styrkur fyrirtækisins er einsdæmi hérlendis. Nemur heildareign Landsvirkjunar um 80 milljörðum króna og eigið fé um 26 milljörðum. Landsvirkjun hefur lengi verið umsvifamesta íslenska fyrirtækið á alþjóðlegum fjármála- markaði og hvarvetna getið sér gott orð meðal fjárfesta. A síðastliðnu ári var Landsvirkjun í fararbroddi stórfyrirtækja er gáfu út skuldabréf á markaði hérlendis. Af ágætuin viðtökum íslenskra verðbréfafyrirtækja og fjárfesta væntir Landsvirkjun góðs af frekari viðskiptum á komandi misserum. Það er metnaður Landsvirkjunar að sjá landsmönnum öllum fyrir sem bestri þjónustu á sem hagkvæmastan hátt. D Landsvirkjun ALLRA HAGUR!

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.