Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1941, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.06.1941, Blaðsíða 6
legt fyrir unga menn að hugsa til framkvæmda á þeim tímum, og þó allra sízt í verzlun. Ásgeir gerðist nú verzlunarmaður við Gránufélags- verzlun á Oddeyri, sem J. V. Havsteen veitti forstöðu, en þessi verzlun var um þær mundir í all-miklum blóma, og var í eigu innlendra manna. Á þeim árum tók Ásgeir þátt í margvís- legri félagsstarfsemi norðan lands, enda var hann vel til þess fallinn, því að hann var einna glæsilegastur og bezt menntaður af yngri mönn- um á Akureyri á þeim tíma. Eitt dæmi um þessi hjáverk Ásgeirs má nefna: Eitt sinn hafði verið pantaður pappír til Gránufélagsins, en þegar sendingin var opnuð, kom í ljós að af- greitt hafði verið skakkt og var pappírinn rauð- ur. Ef til vill hafa seljendurnir erlendis hald- ið, að sama væri hvaða litur væri á pappírn- um handa skrælingjunum þar á íslandi — en pappírinn seldist ekki einu sinni í umbúðir. Og þegar gerð var vörutalning eitt sinn, bað Ás- geir húsbónda sinn um að selja sér pappírinn til að prenta á hann blað og var það auðsótt. Ásgeir nefndi blaðið „Jón rauða“ og entist pappírinn í þrjú blöð. Nú er „Jón rauði“ mesta „raritet“, og í háu verði, ef hann er falur. Tryggvi Gunnarsson, síðar bankastjóri, fékk Ásgeir til að fara til Kaupmannahafnar, en Ás- geir festi þar ekki yndi og leitaði til Skotlands og starfaði þar um skeið hjá Steenberg ræðis- manni í Leith, en hann hafði nokkur viðskipti við ísland og jukust þau fyrir atbeina Ásgeirs. En árið 1894 kom hann til Reykjavíkur og stofnaði verzlunina „Edinborg“ árið eftir. Edinborg hafði fyrst aðset- ur í húsi Þorláks kaupmanns Johnson, og má segja, að það væri skemmtileg tilviljun, því að starfsemi Ásgeirs varð í sumum skilningi eins konar framhald á brautryðjandastarfi Þorláks. — Edinborg tók upp peningaverzl- un, og var það nýmæli. Kaup manna var greitt í peningum, en verzlunin hafði enskt gull, sem hún fékk fyrir seldar ís- lenzkar afurðir. Var gullið flutt til landsins í 100 punda kútum og voru það sterlingspund og 10 shillinga peningar. Þá tóku ekki bankarnir við gjaldeyrinum. Þá var engin gjaldeyrisnefnd, eng- in „Comittee of two“, engin inn- flutningsnefnd, engin viðskipta- nefnd, enginn tollstjóri. Gullið streymdi sína farvegi og urðu verkamenn, er vanir voru að fá greitt með vöru- ávísunum alveg hissa, er þeir fengu gullpen- inga í stað pappírsmiðanna. Sumir neituðu blátt áfram að taka við þessu og vildu heldur vöru. Svo var vanans máttur mikill. Sterlingspundið var þá kr. 18,05. Edinborg veitti þá um árabil miklum peningastraum inn í landið, en peninga var það, sem landið skorti. Veltufé Landsbank- ans náði ekki miljón krónum á þessu árabili, og má af því marka um peningaþörfina. Vöru- skipti og lánsverzlun réðu enn lögum og lof- um. Það voru hinir yngri kaupsýslumenn, sem tóku forystuna í því að byggja upp nýja verzl- unarhætti almenningi til hagræðis. Edinborg varð brátt þekkt verzlun. í blöð- unum gat að líta stórar auglýsingar, sumar í kvæðaformi, eins og þá tíðkaðist, og hófst ein með þessum orðum: Farðu niður í Edinborg, þá færðu margt að sjá, og svo kom runa af upptalningu á girnilegum vörum. Kjörorð verzlunarinnar var: „Lítill ágóði — fljót skil“, og vildi hún selja svo ódýrt sem unnt var, en kaupa afurðirnar háu verði og fyrir ósvikna peninga. Ásgeir reyndi að selja vör- ur sínar svo fljótt sem verða mætti og láta peningana verða sem minnst hreyfingarlausa og nota þá oftar en venjulega var hægt á þeim tímum, því að sími var þá enginn og samgöng- ur illar. Edinborg stofnsetti útibú víða um land og Verzlunarhúsið, sem byggt var 1905. 6 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.