Frjáls verslun - 01.06.1941, Síða 8
inborgar Excelsior-kaffi“, þá mátti hún kjósa
sér einhvern nytsaman búshlut úr verzluninni.
Verzlunin hafði fjórhjólaðan kolavagn, sem var
notaður stundum þannig, að hann var skreytt-
ur og í honum menn, klæddir í hina fegurstu
búninga, og var honum þannig ekið um göturn-
ar. Var kastað pokum með góðgæti til krakk-
anna, sem eltu vagninn, en umbúðirnar voru
auglýsingar. Mikið var af allskonar auglýsinga-
spjöldum á vagninum. Fyrir jólin var ýmislegt
gert til að draga menn að búðargluggunum. Þá
var Jólasveinn Edinborgar til eins og nú og jóla-
bazarinn haldinn í pakkhúsinu, sem allt var
skreytt að innan og hlaðið skápum og borðum,
fullum af varningi. Einnig var það til, að hlaða
kolum upp í stafla í glugga og skyldu menn
svo geta, hve þungi þeirra væri mikill. Sá, sem
næstur komst, fékk kolin heimsend, og einnig
voru veitt fleiri verðlaun. Eitt sinn kom hinn
heppni vinnandi til Ásgeirs og spurði, hvort
hann fengi kolin send heim. Ásgeir sagði, að
það væri alveg sjálfsagt, hann skyldi láta senda
kolin strax og spurði um heimilisfangið. Mað-
urinn átti þá heima suður í París á Frakklandi
og heimtaði kolin send þangað!
Eitt sinn fékk hver, sem verzlaði fyrir krónu
minnst, afhent póstkort, og skyldi sá fá verð-
laun, sem oftast gæti skrifað orðin: Verzlunin
Edinborg“ á kortið. Benedikt Gabríel Benedikts-
son skrautritari gat hrúgað mestu á kortið og
fékk hæstu verðlaunin.
Þannig voru auglýsingabrellurnar í þá daga.
Nú mundi sumt af þessu ef til vill vera talið
til ólögmætra verzlunarhátta, því að nú má ekki
einu sinni setja mynd af filmstjörnu í kaffi-
pakka.
★
Ásgeir Sigurðsson andaðist 26. sept. 1935.
Hann hafði um fjölda ára verið konsúll Breta á
íslandi og aðalræðismaður frá 1928, og mátu
Bretar starfsemi hans mikils, eins og sést á því,
að hann var sæmdur orðunum 0. B. E. (Offi-
cer of the British Empire) og C. B. E. (Com-
mander of the British Empire), sem sjaldgæft
er, að nokkrir fái nema enskir menn. Ásgeir
sótti um lausn frá ræðismannsstarfi 1935, eftir
25 ára þjónustu og verður þess þáttar af æfi
hans ekki getið nánar hér, þótt um það mætti
langt mál rita.
Sigurður B. Sigurðsson, breskur konsúll, nú-
verandi stjórnandi fyrirtækisins, gerðist með-
eigandi að Edinborg 1926, og á hana nú, ásamt
Haraldi Sigurðssyni, syni Ásgeirs. Walter heit-
inn Sigurðsson var einnig um skeið meðeigandi
að verzluninni.
8
Edinborg starfar nú í tveimur deildum, vefn-
aðarvörudeild og leirvörudeild. Heildverzlun
Ásgeirs Sigurðssonar stofnuð 1919 og Veiðar-
færagerð íslands, sem stofnuð var 1934, standa
einnig með miklum blóma.
Við fyrirtækið starfa nú fjöldi manns. —
Verzlunarstjóri er Tryggvi Magnússon, fram-
kvæmdastjóri veiðarfæragerðarinnar er Pétur
Jóhannesson og sölustjóri heildverzlunarinnar
Björn Hjaltested.
CASSON: Eyðsla á opinberu íé
Sjaldan hefir verið látin eins skynsöm skoð-
un í ljósi í brezka þinginu og Robert Boothly,
þingmaður fyrir Aberdeen, lét í ljósi í apríl
síðastliðnum. Hann sagði:
„Það er skylda þingsins að sjá svo um að það
fái fullt verðmæti fyrir það fé, sem streymir
úr ríkisfjárhirzlunni. Ég held að ekki fáist fuilt
verðmæti fyrir það nú.“
Það, sem ríkisstjórnin þarfnast er maður, sem
er „varðhundur ríkiskassans“ og hann á að hafa
aðstoðarmann, sem er þaulvanur allskonar við-
skiftum.
Ef neðri málstofan hefði sinnt tillögu Booth-
ly’s mundi hún hafa sparað 50 milljónir ster-
lingspunda árlega og hefði getað lækkað tekju-
skattinn um stilling í stað þess að hækka hann
um sex pence.
Það er eftirtektarvert, að ríkað hefir í þjón-
ustu sinni fjölda velæfða skattheimtumenn, en
þeir, sem eyða peningunum, þurfa enga mennt-
un að hafa eða reynnslu. Að þessu komust menn
í Heimsstyrjöldinni.
CASSON: Svisslendingurinn duglegi
I sjö aldir hafa Svisslendingar látið sér nægja
að hugsa um sín eigin málefni og komizt vel af.
Þjóðarhagur Svisslendinga er ágætt dæmi um
það, hvað samhent og atorkusöm þjóð getur. I
Sviss er engin olía, kol eða járn og landið á eng-
ar nýlendur og það liggur hvergi að sjó. En
þjóðin er skynsöm og fús til vinnu.
Þjóðarauðurinn nemur 625 sterlingspundum
á hvert mannsbarn í landinu. Til samanburðar
má geta þess, að árið 1928, þegar sem bezt gekk
í Bandaríkjunum, nam þjóðarauður þeirra að-
eins 420 sterlingspundum.
Samanborið við fólksfjölda á engin þjóð eins
marga uppfinningamenn og Svisslendingar. Þar
eru að jafnaði tekin út 3700 einkaleyfi á ári.
PRJÁLS VERZLUN