Frjáls verslun - 01.06.1941, Síða 9
P anama-skurðu rinn
Eitt af þeim mannvirkjum heimsins, sem
mesta þýðingu hefur fyrir verzlun og viðskipti
er Panama-skurðurinn. Þetta mannvirki sam-
einaði Atlanshaf og Kyrrahaf á þann hátt að
sjóleiðir beggja hafanna tengjast þar, en áður
varð að fara hina hættulegu og löngu sjóleið
fyrir suðurodda Ameríku eða flytja vörur á
landi yfir eiðið eða meginland Ameríku.
Panama-skurðurinn á sér merkilega forsögu.
Á sínum tíma var skurðurinn helzta umtalsefni
manna í Evrópu og Ameríku, en sú saga fer
hér á eftir í nokkrum dráttum:
í maí 1879 sat á rökstólum í París alþjóðlegt
þing til rannsóknar á möguleikum til að gera
skipaskurði á milli hafa á þýðingarmiklum við-
skiptaleiðum. Frakkland hafði þá nýlega beðið
mikið afhroð í viðskiptunum við Þjóðverja og
var hugur í mörgum Frökkum í þá átt að fram-
kvæma eitthvað það, er gæti varpað ljóma á hið
nýstofnaða lýðveldi, t. d. á sama hátt og gröft-
ur Suez-skurðarins hafði orðið Napoleon III.
til vegsauka 10 árum áður.
Á fundinum var mjög rætt um skurð gegm
um Panama-eiðið og varð það úr að samþykkt
var að grafa skurðinn og var kostnaðurinn
Iierskipið Nelson í Panama.
PRJÁLS VERZLUN
áætlaður 1200 millj. gullfranka og skyldi ljúk-
ast á 12 árum og jafnvel 8 árum, ef vélar reynd-
ust svo fljótvirkar, sem sumir áætluðu. Skurð-
urinn átti að vera þannig, að hann væri allur
grafinn niður að sjávarmáli.
Ákvörðunin um að grafa skurðinn vakti
óhemju fögnuð. Tólf menn greiddu atkvæði á
móti og voru þeir ekki í miklu áliti og þeir
hæddir og smánaðir. Skiljanlegt var það, að
þessi ákvörðun vakti mikinn fögnuð. Sjófarend-
ur hafði dreymt um það um aldir, að skurður
yrði gerður um eiðið, því ef þetta landhaft, sem
aðeins var 44 mílur á breidd, yrði grafið sund-
ur, styttust siglingar mjög milli þýðingarmik-
illa staða. Leiðin milli New York og San Fran-
cisco var 13,135 mílur, ef farið var um Magell-
ans-sund, en ekki nema 5,262 mílur, ef farið var
um Panama, eða 60% styttra. Leiðir styttust
jafnvel verulega fyrir skip, er sigldu frá Ev-
rópu. Leiðin frá Liverpool til San Francisco
var 13,507 mílur um Magellans-sund, en ekki
nema 7,386 um Panama, eða 42% styttri.
*
Frakkar tóku nú til óspilltra málanna og út-
veguðu leyfi hjá stjórninni í Columbía til að
I skipastiganum.
V