Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1941, Qupperneq 13

Frjáls verslun - 01.06.1941, Qupperneq 13
s Bíö vemn ujornsson ríkisstjóri Þegar sambandslögin gengu í gildi, var sú skipun sett, að Island og Danmörk skyldu skipt- ast á stjórnmálafulltrúum, og var ákveðið, að stofna sendiherraembætti í Kaupmannahöfn. Það reið á miklu að sá maður, er til starfans veldist, yrði honum vaxinn og gæti skapað virð- ingu ög traust út á við á hinu unga íslenzka ríki. Veiting embættisins skapaði ekki deilur, eins og oft hefir þó orðið um embættaveitingar hér á landi. Öllum kom saman um að Sveinn Björnsson væri manna bezt til starfsins hæfur og menn byggðu það á því, að honum hafði áður verið trúað fyrir ýmsum vandamálum, sem hann leysti prýðilega af hendi. íslendingar voru nýgræðingar á hinu „diplómatiska" sviði og Sveinn Björnsson gat því ekki stutt sig við reynslu landa sinna í þeim efnum. En hann yfir- sté þann örðugleika og ávann sér vinsældir og virðingu hvar sem hann kom fram og hefir með því skapað eftirmönnum sínum í samskonar embættum hið bezta fordæmi. Enn á ný er Sveinn Björnsson kallaður til starfs, sem er nýtt og án fordæmis um allt fyr- irkomulag. Hann verður því, eins og í sendi- herraembættinu, að skapa fordæmi fyrir eftir- komendurna. Mikið veltur á, að ríkisstjóraem- bættinu verði gegnt á þann hátt, sem virðing þess krefst, og allir treysta Sveini Björnssyni til að sýna, að Islendingar geti skipað æðstu stöður landsins eigi síður en hinar, sem lægra eru settar. Sveinn Björnsson hefir verið svo gæfusamur að landar hans hafa treyst honum öðrum frem- ur og „Frjáls verzlun“ óskar þess, að hann megi ætíð eiga óskipt fylgi landa sinna í hverjum þeim vanda, sem að höndum kann að bera í starfi hans. FRJÁLS VERZLUN 13

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.