Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1941, Page 15

Frjáls verslun - 01.06.1941, Page 15
Jón Þorsteinsson: Til heilsubófar fyrir innisefumenn Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það, að innisetumenn á skrifstofum og í verk- smiðjum lifa flestum óhollara lífi. Þeir þurfa, ef vel á að vera, að leggja nokkuð að sér til að varðveita góða heilsu, en hvernig eiga þeir menn að geta komið slíku fyrir, sem ef til vill hafa nauman tíma? „Frjáls verzlun'1 lagði þessa spurningu fyrir hinn velþekkta íþróttafrömuð Jón Þorsteinsson og fer hér á eftir umsögn hans: Ég hefi velt þessu oft fyrir mér, og það er engan veginn vandalaust að leysa úr þessari spurningu, svo að haldi komi. Það fer mest eftir áhuga hvers og eins, hver árangur verður en það má benda á ýmislegt, sem menn geta valið úr eftir hentugleikum og geðþótta. Ef menn eru ekki allt of morgunsvæfir, ætti að vera örlítil stund afgangs, áður en farið er á skrifstofuna að morgni. Þá ættu menn að þvo sér öllum með þvottapoka úr ilvolgu eða köldu vatni, og þurrka sig á eftir með snörpu handklæði. Þetta er vægast sagt ekki lakasti þvotturinn og þarf ekki að taka nema örlitla stund. Raunar er einnig gott að viðhafa slíkan þvott að kvöldi, en einkum á það þó við um erfið- ismenn. Ég vil leggja sérstaka áherzlu á þessa morgun-ræstingu. Hún vekur menn og hressir, er einföld og tekur stuttan tíma. Eitt sinn hafði Ríkisútvarpið hina svonefndu morgunleikfimi. Hún var lögð niður, því að það kom í ljós, að almenningur kunni ekki að notfæra sér kennsluna. En það fyrirhafnar- minnsta og jafnvel það bezta eru þó einmitt léttar, daglegar æfingar í heimahúsum. Inni- setumönnum, sem sitja við skrifborð, hættir til að bogna í baki. Slíkar heimaæfingar þyrftu einmitt að vera þannig, að þær réttu menn úr kútnum. Ýmis konar æfingar koma til greina, auðveldar hreyfingar og léttar, sem enginn vandi er að framkvæma. Hér í Reykjavík hafa menn aðgang að sundi og leikfimi. Þetta ættu innisetumenn að iðka. Hæfilegt er að fara í leikfimi tvisvar í viku, en gott að synda sem oftast. FRJÁLS VERZLUN Svo geta allir farið í stuttar gönguferðir. Það er fjöldi skrifstofumanna í Reykjavík, sem svo að segja aldrei er gangandi. Menn fara í bíl á skrifstofuna að morgni og heim og heiman í hádegismatinn. Og á kvöldin fara menn enn í bíl heim og setjast svo inn í stofu og fara að lesa blöð. Þetta er óhollt. Strætisvagnarnir eru líka óhollir og margir innisetumenn nota þá mikið í ferðum milli heimilis og skrifstofu. Þeir, menn, sem með nokkru móti geta komið því fyr- ir, ættu að ganga a. m. k. klukkustund á dag og þá er einfaldast að ganga einmitt á daginn milli heimilis og skrifstofu. Ýmsir skrifstofu- menn, sem ef til vill eiga ekki langa leið heim, taka á sig krók, t. d. niður að sjó eða eitthvað annað, til að lengja leiðina. Þetta er skyn- samlegt. En Reykvíkingar eru að sumu leyti ekki vel settir, hvað gönguferðunum viðvíkur. Rykið á götunum er stórlega óholt, en „asfalter- aðar“ og steinsteyptar götur væru hin bezta heilsugjöf, sem bæjarbúar gætu þegið. Rykið er óþolandi og vafalítið enn meira heilsuspill- andi en reykjarsvælan þó hún sé slæm. Þótt það sé til stórra bóta að ganga inni í bænum, þá er betra að ganga um opin svæði, t. d. út í Effersey, um Vatnsmýrina eða Háteigsveginn, svo að nokkrir staðir séu nefndir. Umhverfi bæjarins er nú orðið þannig, að það er ekki gott til gönguferða. Þar er fullt af „bröggum“ og girðingum. Reykvíkinga vantar gönguveg út úr bænum og bæjarstjórnin ætti að láta ryðja slíka götu. Það þyrfti ekki að vera kostnaðar- samt. Nýverið var verið að tala um friðland Reykvíkinga, sem sumir nefna Heiðmörk. Gönguvegurinn gæti einmitt legið út í þetta „friðland“. Það eru mikil framför, hve Reykvíkingar og aðrir bæjabúar í landinu, fara almennt í skíða- ferðir á vetrum og í alls konar sumarferðir. En menn ættu að gæta að því í sambandi við sumarferðirnar, að yfirleitt er farið allt of langt í bílunum. Ef ferðin er farin til hressing- ar, en ekki til að sjá landslagið, þá ætti bílferð- in að vera sem styzt. Það er ekki holt að sitja 15

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.