Frjáls verslun


Frjáls verslun - 20.06.1948, Page 12

Frjáls verslun - 20.06.1948, Page 12
hún honum trauslur og ástríkur förunautur og var jafnan yndi að koma á hið ágæta heimili þeirra. Lýk ég svo máli mínu með því að óska þess, að þjóð vor eigi eftir að eignast marga menn jafn kostamikla og Pétur Magnússon var. Lárus Jóhannesson. Páll G. Þorma) fyrrum kaupmab ii.r. lézt að heim ili sínu í Reykja- vík 1. maí s.l., eft- ir skamma legu. Páll Þormar var fæddur að Eiðum í S.-Múl. 27. maí 1884, son- ur hjónanna Gutt- orms Vigfússonar alþm. í Geitagerði og Sigríðar Sig- mundsdóttur. Páll lauk gagnfræða- námi á Akureyri vorið 1906 og gerðist eftir það starfsmaður í Islandsbanka á Seyð- isfirði. Þar vann hann til ársins 1915 og var jafn- framt gjaldkeri kaupstaðarins hin seinni ár. Páll flutti til Neskaupstaðar árið 1915 og lagði þar stund á útgerð og verzlun, svo og búskap. í Neskaupstað var honum falin forusta um mörg bæjar- og héraðs- mál. Hann var oddviti Neshrepps á árunum 1920—25 og síðan hreppstjóri 1925—29. I yfirskattanefnd sýsl- unnar og kaupstaðarins var hann um .langt árabil. Hann var meðal stofnenda að Sparisjóði Norðfjarð- ar og stjórnaði honum á annan tug ára. Páll var brezkur vararæðismaður á Norðfirði frá 1931, unz hann fluttist búferlum til Reykjavíkur árið 1937. Fyrstu dvalarár sín í Revkjavík stundaði Páll verzl- un og búskap, en árið 1939 tók hann að sér forstjórn skinnasöludeildar Loðdýraræktarfélags íslands og hafði hana á hendi til dauðadags. Páll G. Þormar var mikill atorku- og eljumaður. Hann var auðugur að hugsjónamálúm og var seint og snemma fullur áhuga á framgangi þeirra og manna lagnastur að vinna þeim fylgi annarra manna. Ör- ugg greind hans, dugnaður og hyggindi öfluðu honum vinsælda og trúnaðar samborgara sinna, sem fundu, að mál í höndum hans var á góðum rekspöl í rétta átt. Hann var hjálpfú® og greiðvikinn með prýði. Páll var góður íþróttamaður á yngri árum og var t. d. meðal glímumanna, er sýndu íþrótt sína á Ólympíu- leikjunum í London 1908. Þá var hann og mikill áhugamaður um sálarrannsóknir og lagði félagsmál- um „spiritista“ mikið lið. — Það er þungur skaði að fráfalli þessa mæta athafnamanns. —- Hann var riddari r álkaorðunnar. Kona Páls er Sigríður Konráðsdóttir frá Norðfirði. Hún lifir mann sinn, ásamt 5 sonum þéirra hjóna. Eitt barn þeirra, dóttir, er látin. Stefán Gunnars- son kaupma'ður andaðist að heim- ili sínu, Hring- braut 116 í Rvík, 17. apríl s.l. Hann var fædd- ur að Litlabæ á Vatnsleysuströnd 26. sept. 1880, sonur Gunnars Stefánss. bónda þar og Sesselju Jónsdóttur, konu hans. Á unga aldri nam Stefán skó- smíði í Reykjavík. Setti á stofn skó- vinnustofu 1903 og ári síðar skó- verzlun. Árið 1906 hætti hann þá eigin rekstri, en tók þá við forstöðu í skósöludeild Edinborgar — er hann hafði á hendi til ársins 1910. Opnaði hann þá á ný sína eigin verzlun og vinnustofu, sem hann síð- an veitti forstöðu til dauðadags, við sívaxandi viðskipti og traust viðskiptavina. Er verzlun hans nú ein þekkt- asta skóverzlun á landinu. Stefán Gunnarsson var sómi stéttar sinnar, áreið- anlegur í viðskiptum og vandaður í alla staði, svo að hann mátti ekki vamm sitt vita. En hann ætlaðist líka til hins sama af þeim, er hann skipti við, og var lítt um þá gefið, er honum fannst brjóta hinar gullnu reglur viðskiptalífsins, og setja blett á verzl- unarstéttina. I félagslífi verzlunarmanna tók Stefán mikinn þátt. Var lengi í stjórn Félags ísl. skókaupmanna og var formaður þess um skeið. Stefán hóf lífsstarf sitt blá- 136 FRJÁLS verzlun

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.