Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1953, Blaðsíða 2

Frjáls verslun - 01.01.1953, Blaðsíða 2
Nýtt frumvarp til laga um hlutafélög Eins og kunnugt inun, er þaS almenn regla í íslenzk- um rétti, að menn ábyrgjast efndir á fjárhagslegum skuldbindingum, er þeir hafa tekizt á herðar, með öll- um eignum sínum. Hinar stórkostlegu hreytingar, sem orðið hafa í atvinnulífi s.l. öld, hafa haft í för með sér, að þörf hefur verið á miklu fjármagni til atvinnu- rekstrarins. Einstaklingnum var oft og tíöum um megn að leggja slíkt fjármagn fram, og lá þá hendi næst, að margir einstaklingar legðu fé fram í sameiningu eða félagi til rekstrarins. En stóratvinnurekstri er einatt samfara mikil áhætta. Af því leiddi, að jafnvel þótt einstakiingurinn gæti lagt fjármagnið til hans fram, veigraði hann sér við að hætta öllum eignum sínum í atvinnurekstur, sem svo mikil fjárhagsáhætta fylgdi. Þessi ástæða skapaði nauðsynina á takmark- aðri ábyrgð einstaklinganna. Á þessum tveim megin- sjónarmiðum er löggjöf um hlutafélög reist. Eins og atvinnuvegum okkar er háttað, hefur þetta félagsform haft og hefur mikla þjóðfélagslega þýðingu. Hins vegar er á það að líta, að sumt í skipulagi félaga þessara hefur reynzt varhugavert og jafnvel gefið tilefni til ýmislegs misferlis, er gerir opinber af.skipti af þeim nauðsynleg. Hlutafélögin eru orðin svo veiga- mikill þáttur í atvinnulífi þjóðarinnar, að tryggja verð- ur heilbrigðan rekstur þeirra með löggjöf, eftir því sem unnt er. Er þar fyrst að líta á hag hluthafanna sjálfra og afstöðu þeirra sín á milli, þannig að þeir séu ekki blekktir um stofnun, skipulag, starfshætti og hag félagsins. I því efni her meðal annars að taka hæfilegt tillti til þeirra félagsmanna, sem í minni hluta kunna að vera í félagi. I öðru lagi ber að tryggja, að þeir, sem skipta við félagið eða kaupa hlutabréí þess, eigi kost á sem nákvæmastri vilneskju um hin þýðingarmestu atriði, sem þau viðskipti varða. Tekur þetta ekki hvað sízt til lánardrottna félaga, sem hafa mikilla hagsmuna að gæta um greiðslu og varð- veizlu hlutafjár. Hér á landi voru sérstök lög um hlutafélög fyrst sett árið 1921, og eru þau enn í gildi, lög nr. 77/ 1921. Við samningu þeirra var mjög farið eftir dönsku hlutafélagalögunum frá 1917, þótt af væru sniðnir ýmsir agnúar. Á þeim tíma, sem síðan er liðinn, hefur mikil reynsla fengizt um löggjöf um hlutafélög Hafa nágrannaþjóðir okkar endurskoðað löggjöf sína í þess- um efnum og sett um þau ný lög. Það var því vonum síðar, að hafizt var handa hér um setningu nýrra laga um hlutafélög. Með þingsályktun 25. febr. 1948 ályktaöi Alþingi að skora á ríkisstjórnina að láta fram fara endur- skoðun á lögum nr. 77/1921, um hlutafélög, og lög- um nr. 42/1903, um verzlunarskrár, firmu og pró- kúruumhoð. Með bréfi 13. maí 1948 skipaði dóms- málaráöherra þá hæstaréttardómarana Árna Tryggva- son og Þórð Eyjólfsson til að framkvæma störf þessi. Unnu þeir síðan að endurskoöun áðurgreindra laga og sömdu frumvarp til laga um hlutafélög, sem lagt var fram á Alþingi 1952. Dómsmálaráðherra Bjarni Benediktsson hafði frumvarpið til athugunar, og var nokkrum atriðum þess skipað í samræmi við óskir hans. Um samningu frumvarpsins segir svo í athuga- semdum við það: „Við' samningu frumvarps þess, er hér liggur fyrir, hefur að sjálfsögðu verið tekið tillit til hlutafélaga- löggjafar með ýmsum þjóðum, en einkum hefur þó verið höfð hliðsjón af ákvæðum sænsku laganna frá 1944 og danska frumvarpsins frá 1941. Þó hefur frumvarjii þes;u veri liagað allmjög á annan veg, bæði um niðurskipun og efni, eins og sjá má, ef sam- anhurður er gerður. Niðurskipun hefur verið höfð sú, sem bezt hótti hæfa efninu, en efni verið ákveðið og lagað, sem unnt er, eftir okkar reynslu og sniðið við okkar hæfi. Þá hefur og verið tekið tillit til fræðilegrar gagnrýni, sem fram hefur komið um nú- gildandi hlutafélagalöggjöf ýmissa erlendra þjóða, og þeirrar reynslu, sem þegar er fengin af nýjustu er- lendri löggjöf á þessu sviði.“ Frumvarp þetta er mjög ýtarlegt. Er það í 16 2 FRJÁLSVERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.