Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1953, Blaðsíða 11

Frjáls verslun - 01.01.1953, Blaðsíða 11
mál, ákvað ég að reyna að færa viðræður okkar inn á almennan grundvöll. Benti ég á, að eins og vígstöðu okkar væri nú háttað, væri eina raunverulega lausnin sú að leggja höfuðáherzlu á, að láta heri okkar halda Rússum eins langt frá landamærum Þýzkalands og unnt væri. Enda þótt þessi ákvörðun myndi um síðir verða hinum vestrænu Bandamönnum í vil, þá væri þó alltaf sá möguleiki fyrir hendi að ná einhverju samkomulagi við þá. Hitler snérist harkalega á móti þessari ráðagerð minni. Hann kvað slíkt samkomulag óhugsandi, og ekki var hann fáanlegur til að svara þeirri málaleit- an minni, að ég yrði sendur til Madrid þeirra erinda að hlera eftir samkomulagsgrundvelli við Bandamenn vestrænu þjóðanna. 1 staðinn setti hann upp hörku- svip og tagði með miklum áherzlum: „Þetta stríð verður að heyja unz yfir líkur án nokkurrar mála- miðlunar. Þegar hin nýju vopn okkar verða tilbúin, munum við sannfæra Breta um, hverjir hafi tromp- in á hendinni. Við slíka menn getum við ekki gert neitt famkomulag.1' Á hinu föla en þó villta andliti Hitlers mátti sjá bláleitar sáraumbúðir, og á nýjan leik fór hann að tala um samsærið. „Ég hef alltaf vitað, að það hefur verið lítill hópur manna, sem hefur viljað ryðja mér úr vegi. En þeim verður ekki kápan úr því klæðinu. Ég skal halda áfram starfi mínu til hins síðasta. Það sem þersum mönnum yfirsézt er það, að næstum því allir foringjar í hernum fylgja mér og æskulýður landsins sýnir mér samstilltan stuðning.“ Þegar Hitler hafði gert hlé á máli sínu, notaði ég tækifærið og greip inn í: „Ég heyri sagt, að sumir af hinum nánustu samstarfsmönnum yðar í flokknum eins og t. d. Gottfried Bismarck, greifi, séu flæktir í sainsærismálið. Það er ekki ætlun mín nú að mynda neina skoðun á þessu máli, en samt vildi ég þetta sagt hafa: Þér megið undir engum kringumstæðum láta það spvrjast út um hsim, að sonarsonur járnkanzlar- ans hafi látið lífið á gálganum. Verði hann sekur fundinn, dæmið hann til ævilangrar fangelsisvistar, en fvrir alla muni látið ekki slíkt atvik verða vatn á myllu óvinanna.“ Hitler sendi mér dapurlegt augnaráð og sagði. eins og með erfiði'munum þó, að þessi aristókrataklíka ætti ekkert annað betra skilið. Samt var ég nú á þeirri skoðun, að orð mín hefðu hitt í mark og að Bismarck yrði ekki líflátinn. Rétt í því að ég var að búast til að fara, rétti Hitl- er mér litla öskíu, og va^ð és ekki lítið undrandi, þegar ég sá. að hún innihélt Riddarakross Hernaðar- orðunnar. „Þér hafið unnið fjölþætt starf fyrir föð- FRJÁLS VERZLUN Shell á íslandi 25 ára Framh. af bls. 8. öllum þjóðvegum. Tankbílar aka nú olíu og benzíni á alla þá staði, þar sem því verður við komið, en „Skeljungur“ flytur heila farma á hafnir úti á landi. Eitt af íyrirhuguðum verkefnum félagsins er að reisa geyma fyrir brennsluolíu handa togurum á þeim stöðum, er bezt Bggja við aðalmiðunum og víðar. Lœtur hag starfsmanna sig miklu skipta. Er H.f. Shell á íslandi hóf starfsemi sína, voru starfsmenn þess 26 að tölu, þar af átta á gamla „Skeljungi“, en nú eru þeir 89. Félagið hefur alla tíð látið sér annt um hag starfsmanna sinna. Má í því sambandi nefna eftirlaunasjóð þann, sem félagið hefur komið á fót og talinn er einn sá bezti hér á landi. Innhorgunum í hann er þannig liáttað, að starfsmenn félagsins borga í hann 6% af launum sínum, en félagið horgar sem svarar 17% af launum þeirra. Þegar starfsmenn félagsins hafa unnið hjá því minnst 20 ár og náð 60 ára aldri, byrja þeir að fá útborgað úr sjóðnum og lála um leið af störfum. Hörpudiskurinn, merki félagsins, er fyrir löngu Iandsþekkt. Landsmenn vita, að þar sem þetta merki sézt, þar má fá góða þjónustu. Félagið er brautryðjandi á sviði nútíma olíudreií- ingar hér á landi. Á þeim 25 árum, er félagið hefur starfað, hefur það leyst af hendi mikilvægt verk í þágu albjóðar, er landsmönnum ber að þakka. ERJÁLS VERZLUN árnar brautryðjenda íslenzkra olíumála allra heilla á þessum tímamótum. G.M. • Ma&ur getur ekki alltaf veriS hetja, en hann getur alltaf veriS maSur. GOETHE. • Kvartaiðu aldrei yfir vandrœSum þínum, því oð meira en helmingur tekna þinna er þeim aS þakka. ROBERT UPDEGRAFF. urlandið, og það er vissulega ekki yðar sök, þó að sendiför yðar til Tyrklands sé nú á enda. Þér hafið starfað þar í fremstu línu, eins og tilræðið, sem yður var sýnt, er gott dæmi um.“ Að svo mæltu rétti hann mér hendina. Siðasti fundur okkar var á enda. 11

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.