Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1953, Síða 7

Frjáls verslun - 01.01.1953, Síða 7
Olíustöð Shell við Skerjafjörð. ÍSHELL SHBLL A. ÍSLJLILSnDX Þdttaskil í olíuverzlun landsmanna. Olíunotkun landsmanna var ekki fyrirferðamikil að magni til á fyrstu árum tuttugustu aldarinnar. Ekki var heldur við öðru að búast. Vélamenningin liafði ekki enn náð að halda innreið sína inn í atvinnuvegi þjóðarinnar. Atvinnutækin voru starfrækt á hinn frumstæðasta hátt. Steinolía var þó orðin hér nauð- synjavara og hafði svo verið frá því á síðari helming 19. aldarinnar. Hún var notuð til ljósa á velflestum bæjum og flutt á helztu hafnir landsins í tunnum. Með komu fyrsta bátamótorsins til landsins árið 1907 má segja að hefjist ný þáttaskil í atvinnuvegun- um. Landsmenn höfðu reyndar skömmu áður komizt í kynni við togarana, en þeir voru knúðir af gufu- afli. Nú var skriðan komin af stað. Bæði til lands og sjávar jókst þörfin fyrir olíu- og benzínhreyfla. Til- koma bifreiðarinnar olli hér straumhvörfum. Hinum nýju aflvélum varð að sjá fyrir ódýru eldsneyti, og óx sú þörf með hverju ári. 011 olía og benzín lands- manna var flutt hingað í tunnum, og síðan dreift út um hafnir landsins með strandferðaskipum eða öðr- um skipum, sem til náðist. Þessi tunnuflutningar voru óhentugir og dýrir. Tilgangslaust var að senda hingað sérstök olíuflutningaskip erlendis frá, þar sem hveigi var aðbúnaður til að losa þau. Með sívaxandi olíu- og benzín-notkun varð mönnum það ljóst, að hér þurfti að koma á stórfelldri breyt- ingu til batnaðar. Olíuflutningar með tankskipum mundu lækka verðið á þessari nauðsynjavöru og dreifing öll verða auðveldari og betri. Til þess að svo mætti verða, varð að reisa hér olíustöð með öllu því sem henni tilheyrði. Það var haganlegast fyrir þjóð ina og óhjákvæmilegt í sambandi við þróun atvinnu- veganna og auknar samgöngur. En slíkar fram- kvæmdir kosta mikið fé, og það var ekki fengið að öllu leyti hér innanlands. Risavaxnar bYrjunarframkvœmdir. Undirbúningur að stofnun félagsins hófst þegar á árinu 1926. og náðust samningar við brezk-hollenska félagið Shell, er starfrækir olíuverzlun um allan heim, um að leggja fram fé til framkvæmdanna á móti Is- lendingum. Árið eftir var svo hafizt handa um byggingu olíu- stöðvarinnar, en fest hafði verið kaup á lóðarspildu í því augnamiði í Skildinganesi við Skerjafjörð. FRJÁLSVERZLUN 7

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.