Frjáls verslun - 01.11.1959, Qupperneq 11
Gunvar GuÖjónsson,
form. Verzlunarráðs íslands:
Stefnt í rétta ótt
líin'ða flutt á síðasta aðalfundi Verzlunarráðsins
Er vér lítum yfir það ár, sem liðið er síðan
Verzlunarráð Islands hélt seinasta aðalfund sinn,
hlýtur svo að virðast, ekki aðeins frá vorum sjón-
arhóli, heldur og allra annarra landsmanna, sem
þeir atburðir hafi gerzt, sem kunni að marka
tímamót í efnahagslegri þróun þessa lands. Að
vísu fer því fjarri, að fullvíst sé, hvort stefnubreyt-
ing sú, sem orðið hefir á undanförnu ári, sé til
frambúðar, en hins vegar má fullyrða, að það hafi
verið öllum þorra landslýðs ljóst, þegar að síðustu
áramótum dró, að stöðva yrði þá cfnahagslegu
helgöngu, sem þjóðin, mismunandi fús eða ófús,
hafði þreytt á undanförnum árum, og birtist í, að
því er virtist, óviðráðanlegri víxlhækkun kaup-
gjalds og verðlags.
Þessi aukni skilningur fólksins í landinu á þeirri
staðreynd, að slík dýrtíðarskrúfa kæmi engum til
góða, heldur leiddi þvert á móti til hruns innan
fyrirsjáanlegrar framtíðar, olli þeirri hugarfars-
breytingu, að minnsta kosti í svip, að meðvitundin
um vilja fólksins til þess að hlíta skynsamlegum
ráðstöfunum, ef upp á þær væri boðið, gaf meiri-
hluta Alþingis og hinni nýju stjórn lofsvert áræði
til þess að horfast í augu við staðreyndirnar, þann-
ig að lögleiddar voru ráðstafanir í þeim tilgangi að
stöðva dýrtíðarskrúfuna og leitast við að stefna
inn á heilbrigða braut.
★
Sú stutta reynsla sein fengizt liefir af þessum
ráðstöfunum leiðir greinilega í ljós, að stefnt hefir
verið í rétta átt, en þess ber þó vitaskuld að minn-
ast, að hér hafa aðeins verið stigin fyrstu sporin
á þeirri braut, sem leiðir til efnahagslegs heilbrigðis,
og eitt meginskilyrði fyrir því, að þau spor verði
fleiri, er, að allir þegnar þjóðfélagsins neiti sér um
að gera nokkrar þær kröfur, sem ekki byggjast ein-
vörðtmgu á efldri getu atvinnuvega þjóðarinnar og
fólksins sjálfs, til þess að fullnægja slikum kröfum
í krafti aukinnar framlciðslu, aukinnar sparifjár-
myndunar og bættra atvinnuhátta.
I sérstaklega athyglisverðri og raunsærri grein,
sem birt var í sumar, benti dr. Jóhannes Nordal
með ljósum rökum á, hvert þróun efnahagsmálanna
yrði að stefna, og hver endurskoðun efnahags-
kerfisins yrði að fara fram, til þess að jafnvægi
fengist í peningamálum og nauðsynleg efling at-
vinnuveganna mætti eiga sér stað.
Nefndi hann þar á meðal nauðsyn þess, að sköp-
uð yrðu skilvrði fyrir rýmkun hafta og auknu
frelsi í innflutningsverzlun í þeim tilgangi að stuðla
að frjálsri verðmyndun og samkeppni. Ennfremur
benti hann á nauðsyn þess að kveða niður þann
verðbólguhugsunarhátt, sem tíðkazt hefir með
þjóðinni, allt frá því að styrjöldinni lauk, en sú
vantrú á verðgildi peninganna, sem hann felur í
sér, hefir orðið til þess, að menn hafa haft tilhneig-
ingu til þess að festa ekki einungis sparifé sitt, held-
ur og allt það lánsfé, sem þeir gátu komizt yfir, í
fasteignum eða öðru, sem þeir töldu að hækka
myndi í verði jafnframt sem skuldirnar gufuðu að
talsverðu leyti upp í verðbólgunni. Afleiðingin hef-
ir orðið sú, að fjármagnið hefir ekki leitað þangað,
sem það er nauðsynlegt fyrir þjóðarbúið, þ. e. a. s.
til atvinnuveganna. Ræðir dr. Jóhannes Nordal í
því sambandi nauðsyn þess að koma upp verð-
bréfamarkaði, til þess að lögmál framboðs og eftir-
spurnar fái notið sín, og fjármagn fengist bæði til
framkvæmda hins opinbera og einstaklinga, án þess
að slíks fjármagns þyrfti jafnan að afla með aukn-
um sköttum, erlendum lánum og peningaþenslu.
Er ekki að efa, að allir hérstaddir munu mjög sam-
dóma sjónarmiðum greinarhöfundar.
★
Hugmyndin um verðbréfamarkað eða kaupþing,
liefir verið á döfinni hjá Verzlunarráði íslands um
nokkurt árabil, og var á sínum tíma reynt að koma
henni á framfæri við stjórnarvöldin, en án árang-
urs í það sinn. Munu hér á fundinum síðar verða
bornar fram tillögur til ályktunar um þessi mál.
Það liggur í augum uppi, að höfuðverkefni hverr-
ar þeirrar rikisstjórnar, sem tekur við völdum að
afloknum íhöndfarandi alþingiskosningum, lilýtur
FRJÁLS VERZLUN
11