Frjáls verslun - 01.11.1959, Síða 20
Vi3 suðurhluta Argentínu getur orðið yiir 11 ra munur ó sjóvarborði milli ilóðs og íjöru. Fjara hefur
verið þegar rayndin var tekin og eru því ullarballarnir iluttir um borð, þar sem skipin standa á
þurru landi
griparækt er stunduð á láglendinu en sauðfjárrækt,
þar sem landið er hærra. Þarna er þó þriðja stærsta
borg landsins, Córdoba, með um 440 þús. íbúa.
Upphaflega byggðist hún sem samgöngumiðstöð,
en nú hafa verið gerðar miklar vatnsaflsstöðvar í
nágrenninu og margs konar iðnaður hefur risið upp
í borginni, er nýtir hina ódýru raforku.
Argentínska ullin þykir mjög góð
Patagónía
Þetta er syðsta og stærsta hérað Argentínu.
Atvinnulíf er þar einhæft, fyrst og fremst sauðfjár-
rækt, og uppbygging yfirleitt skammt á veg kom-
in. Þó hafa fundizt jiarna olíulindir, og hefur 1600
km löng leiðsla verið lögð frá héraðinu til Buenos
Aires til flutnings á jarðgasi. Og í surnum dölum
Andesfjallanna, sums staðar þar sem landslag þykir
mjög stórbrotið (þar eru t. d. jöklar), hafa verið
byggð stór hótel, sem eru cinhver eftirsóttustu
ferðamannahótel í Suður-Ameriku.
Landakröfur handan hafsins
Argentínumenn hafa gert landakröfur á hendur
Bretum og vilja fá Falklandseyjar, Suður-Georgíu
og fleiri eyjar auk vænnar sneiðar af Antarktíku
(Suðurheimsskautslandinu), sem Bretar liafa helg-
að sér. Þessar kröfur munu ckki byggðar á öðru
en nálægðinni við Argentinu og hafa ekki verið
háværar að undanförnu.
★ ★ ★
20
FRJALS VERZLUN