Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1960, Qupperneq 17

Frjáls verslun - 01.06.1960, Qupperneq 17
Á árunum frá 1860—1949 sk.apaðist þarna ein mesta viðskiptamiðstöð Austurlanda. Duglegir kaupsýslumenn i'luttust þangað unnvörpum, og fljótt streymdu vörur frá öllum heimsálfum til Hong Kong og var dreift þaðan um hið víð- feðma Kína. Jafnframt náðu verzlunarfyrirtæki í Hong Kong fljótt miklum tökum á útflutn- ingsverzlun Kína, og í æ ríkara mæli voru kín- verskar afurðir og framleiðsluvörur seldar á heimsmarkaðnum fyrir milligöngu þeirra. Við kínversku byltinguna 1949 verður mikil breyting á, þegar Kína lokar dyrum sínum með „Bambustjaldinu“. En hinir reyndu og auðugu kaupsýslumenn, sem nutu sérstakra ívilnana af hálfu brezku krúnunnar, bæði hvað snerti við- skiptafrelsi og skattfríðindi, voru fljótir að átta sig á hinum nýju viðhorfum. Á ótrúlega skömm- um tíma er byggt upp í Hong Kong iðnaðar- stórveldi, sem veitir hinu nýja Kína og ná- grannaríkinu í austri, Japan, harða samkeppni. Aðstæðurnar voru að vísu mjög góðar að ýmsu leyti. Viðskiptasambönd traust um víða veröld, mikið fjármagn fyrir hendi og gnótt af ódýru vinnuafli. Eini iðnaðurinn, sem framan af hafði náð nokkurri teljandi grósku-, voru skipasmíðar og skipaviðgerðir, og í dag er sá iðnaður risavax- inn í Hong Kong. En þar eru nú að auki starf- andi hvorki meira né minna en 3000 nýtízku iðju- ver, sem framleiða hvers kyns varning, frá saum- nálum til stærstu véla. Þar eru 700 vefnaðar- vöruverksmiðjur; 400 verksmiðjur, er framleiða úr léttmálmi, svo sem búsahöld og fleira; 150 verksmiðjur, sem framleiða plast- og gúmmí- vörur; 100 skóverksmiðjur; 70 verksmiðjur, sem framleiða rafhlöður og luktir; 50 verksmiðjur, sem framleiða reipi og kaðla; og svo mætti lengi telja. Nefna má sem dæmi um hina gífurlegu vöru- flutninga um Hong Kong, að árið 1957 voru fermdar og affermdar 30 milljónir tonna af varn- ingi í höfninni þar. — I árslok 1958 var tekinn í notkun nýr og fullkominn flugvöllur í Hong Kong, sem var að mestu leyti byggður út í höfnina með uppfyllingu, sökum þess, að land- rými var ekki fyrir hendi. Nær 20 flugfélög hafa þar nú fasta viðkomu, og eru samgöngur því mjög greiðar. í Hong Kong eru nú starfandi yfir 1500 skól- ar. Þar var stofnaður háskóli árið 1912, og Framh. á bls. 20 f j| rnm iWmtliÍfirr Þéttbýli er geysimikið í Hong Kong. Ibúafjöldinn hefur tvöfaldazt síðan 1946. í lok síðasta árs voru íbúarnir nærri 3 milljónir. og í árslok 1961 er búizt við að þeir verði allt að 3,6 millj. Fólksfjölgunin er að nokkru leyti afleiðing hárrar fæðingartölu, en mest fjölgar þó vegna flóttamanna og innflytjenda frá Kína. Flóttamannavandamálið er sérstaklega alvarlegt vegna þess, að fá lönd vilja taka við kínverskum innflytjendum, og ekkert þeirra nema í mjög litlum mæli. — Húsnæðisvandræðin eru gifurleg og búa 300 þús manna í húsnæði, sem er svipað eða verra en það, sem myndin til hægri sýnir. Einnig búa ijölmargir í bátum á víkum og sundum. Mikið er gert til þess að reyna að bæta ástandið og sýnir myndin til vinstri smáhýsi, sem byggð hafa verið yfir fyrir flóttamenn, fyrir fé sem safnað hefur verið erlendis. FRJALS VERZLUN 17

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.