Frjáls verslun - 01.06.1960, Side 20
verkefni voru rædd og leyst. Þá voru sýndar og
útskýrðar fjölmargar kvikmyndir í sambandi við
kennslu í sölufræði og vörufræði. Var mjög vandað
til vals á kvikmyndum, enda voru þær afbragðs-
góðar og gagnlegar. Sem liður í kennslu í sölufræði
og vörufræði voru einnig heimsóttar margar verzl-
anir og fyrirtæki og voru ýmis vandamál tekin
fyrir og rædd í fyrirtækjunum. Var slíkt til hins
mesta gagns fyrir nemendur.
Skólastjóri Verzlunarskóla íslands, dr. Jón Gísla-
son, sleit námskeiðinu lö. maí sl. og afhenti nem-
endum prófskírteini. Hæsta einkunn að þessu sinni
hlaut Kristján Kristjánsson starfsmaður hjá Síld
og Fisk, og hlaut hann bókaverðlaun fyrir góða
frammistöðu.
Það er samdóma álit allra, sem fylgzt hafa með
þessu námskeiði Verzlunarskóla Islands fyrir af-
greiðslufólk, að það hafi tekizt með ágsetum og að
fengizt hafi dýrmæt reynsla, sem byggja megi á
framtíðarstarf Verzlunarskólans á þessu sviði.
HONG KONG , , , Framh. af bls. 17
Verksmiðjubyggingar í Hong Kong eru venjulega hafðar margra
hæða til þess að nýta landrými sem bezt.
Nemendur að störfum í æfingabúð Verzlunarskólans
TTnnmrrr
stunda þar nú 1000 nemendur nám í fagurfræði,
læknisfræði, verkfræði og byggingarlist.
Enda þótt hin stutta saga Hong Kong ein-
kennist mjög af auðsköpun, hefur hin öra fólks-
fjölgun síðari árin haft í för með sér flest vaxtar-
mein stórborga. Húsnæðisvandræði eru gífur
leg. Hundruð þúsunda manna búa í hreysum,
sem þættu léleg gripahús hér á landi, og mikill
fjöldi fólks hefst við í opnum bátum, sem þekja
heilar víkur og voga. Alþjóða-Rauði krossinn
hefur tekizt á herðar að sjá hinum aðþrengd-
ustu fyrir nokkurri matbjörg, og er tvisvar sinn-
um á dag úthlutað hrísgrjónaskammti í fátækra-
hverfunum.
Hong Kong er í dag ein þýðingarmesta við-
skipta- og framleiðslumiðstöð heims, en stjórn-
málaátök heimsveldanna geta þó skyndilega
gjörbreytt aðstöðu hennar. Eáir trúa því, að
Kína muni sætta sig við brezk yfirráð í Hong
Kong til loka þessarar aldar, samkvæmt samn-
ingnum frá 1899, og varla lengur en þeir telja
sig hafa hag af dugnaði brezkra kaupsýslu-
manna. Ef til samningsuppsagnar kemur virðist
það augljóst, að Bretar eiga einskis annars úr-
kosti en láta af hendi þessa dýrmætu nýlendu
sína gegn bezta fáanlega boði.
20
FRJÁLS VERZLUN