Frjáls verslun - 01.11.1961, Page 22
undirbúningi. K.F.IJ.M. hefur lengi átt og á mikil
ítök meðal Hafnfirðinga. Ymsir sértrúarflokkar og
hópar starfa þar af sama áhuga og dugnaði og þeir
eru þekktir fyrir annars staðar frá.
Ilinar æðri Jistir eiga hugi margra. Þar eru skáld,
sem yrkja bæði í bundnu og óbundnu máli, sagn-
fræðingar og söguritarar, listmálarar, sem festa á
fleti J)að, sem fyrir augun bcr og hugskotssjónir,
og tilheyrir list þeirra ýmsum mismunandi vinsæl-
um „ismum“ málaralistarinnar, tónskáld, sem gefið
hafa þjóð sinni fögur lög, en þar ber af hið aldna
og stórmerka tónskáld, Friðrik Bjarnason, sem fyr-
ir löngu er orðinn landsfrægur maður. Karlakórinn
Þrestir starfar með miklum áhuga og veitir bæjar-
búum unun með söng sínum, svo og lúðrasveitir
tvær, Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Lúðrasveit
drengja.
í Hafnarfirði munu vera starfandi allt að 100
félög og félagasamtök, sem hafa mismunandi til-
gangi að gegna og mismunandi stefnuskrár. Sum
eru hagsmunafélög ákveðinna stétta, nokkur um
tómstundamál, svo mætti lengi til tína. Félags- og
skemmtanalífi í bænum hefur nokkuð háð skortur
á góðu og heppilegum húsakynnum, þó að Sjálf-
stæðishús, Alþýðuhús og Góðtemplarahús bæti
nokkuð úr. En vel hefur verið séð fyrir kvikmynda-
sýningum í tveim húsum, sem þekkt eru fyrir
smekklegt val kvikmynda, cnda aðsókn eftir því.
íþróttir hafa oft staðið í nokkrum blóma og frægt
er hið hafnfirzka handknattleikslið, sem getið hefur
sér góðan orðstír bæði hérlendis og erlendis. Fegrun
bæjarins hefur átt vaxandi skilningi að fagna á
seinni árum, bæði hjá einstaklingum og bæjarfé-
lagi. Einstaklingai- leggja mikla vinnu og hugvit í
að j>rýða garða við hús sín með blóma- og trjá-
skrúði, en bæjarfélagið útbýr almenningssvæði.
IJndir forustu Málfundafélagsins Magna hefur vcr-
ið ræktaður upp svo fagur og sérkennilegur skrúð-
garður að hann ber af flestum sambærilegum görð-
um hér á landi.
„Hér ilmar allt af gróðri og ómar af söng
og allt er svo þrungið lífi.“
Lokaorð
Á bæjarfélagið hafa verið lagðar ýmsar kvaðir
og af því krafizt ýmiss konar framkvæmda fyrir
almenning. Það hefur orðið að leggja fram mikið
fé til kaupa á bæjarlandinu, og síðar kaup á Krýsu-
víkinni. Það verður að leggja fram ákveðnar fjár-
upphæðír lil menntamála, félagsmála, framfærslu-
mála og hvað þetta heitir nú allt saman. Það verð-
ur að hafa á hendi ýmiss konar framkvæmdir til
sameiginlegra þarfa bæjarbúa, svo sem lagningu
vega, raflýsingu, vatnsveitu, holræsagerð, hafnar-
gerð, byggingu barnaleikvanga o. fb, o. fl. Til þess
að geta innt þetta af höndum hafa verið lögð út-
sviir á bæjarbúa. Margt er búið að gjöra og mörgu
búið að breyta, en margt er líka. eftir að fram-
kvæma, og svo er rifizt um bæjar- og þjóðfélags-
mál hvenær sem tækifæri gefast.
, *
Góðir lesendur. Mér er fullljóst að það, sem hér
hefur verið dregið fram, er ritað á mjög sundur-
lausan og skipulagslausan hátt, sumt smátt til tínt,
en öðru veigameiru sleppt. Vandamál, framkvæmd-
ir og bæjarbragur mun sjálfsagt vera mjög á svip-
aðan hátt, hvar sem er á landinu. Það má lengi deila
um það, hvort einn staður sé fegurri, viðkunnan-
legri eða búsældarlegri en annar. Þar er komið inn
á hugtakið átthagaást. Hverjum einstökum þykir
sjálfsagt sín sveit fegurst og bezt, og í því tilfelli
eru Hafnfirðingar engir eftirbátar annarra. Eigi
að síður er það staðreynd, að flestir, sem fara að
eiga heíma í Hafnarfirði, jafnvel útlendingar, kunna
þar svo vel við sig, verða svo snortnir af hlýleika
byggðarlagsins og sérkennilega fögru og skjólgóðu
landslaginu og jafnvel af fólkinu þar, að þeir vilja
hvergi annars staðar búa, og geta flestir tekið undir
með skáldkonunni hafnfirzku, Guðlaugu Péturs-
dóttur, er hún kveður:
„Þú hýri Hafnarfjörður,
sem horfir móti sól,
þótt hraun þín séu hrjóstrug
er hvergi betra skjól.
Þinn fagri fjallahringur
með fönn á efstu brún
og hamraborgir háar,
á holti gróin tún.
Sér íeikur létti blærinn
við lága klettaströnd,
þar bærist fley á bárum
og blika seglin þönd.
Er dvína dagsins glæður
og daprast geisla fjöld,
þín gæti, gamli Fjörður,
hin góðu máttarvöld.
22
FRJÁLS VBRÍLUN