Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1961, Qupperneq 32

Frjáls verslun - 01.11.1961, Qupperneq 32
mennirnir hafa efnazt vel. Þess má einnig geta hér, að landeigendur, sem lönd áttu að sjó þar sem landnótum var kastað, áttu landshlut af afla, og mun hann hafa verið 5—6%. Gat það orðið dálag- legur skildingur, einkum þar sem veiðisæld var fvrir landi. Sem dæmi um þetta má nefna, að í kringum 1890 var eitt sinn að haustlagi eða snemma vetrar kastað fyrir síld í Eskifirði við ströndina gegnt kauptúninu. Upp úr þessum síldarlás var búið að salta 5000 tunnur af síld, þegar norðanveður reif nótina, en þá tapaðist það, sem eftir var af síld í lásnuin, og er talið að það hafi verið næstum annað eins. Landshlutur Hólmaprestsins úr þessum eina lás var því 250 tunnur. Mikið hefur stundum verið gert úr þessum upp- gripum og skjóttekna feng. Halldór Laxness orðaði þetta svo, af sinni þjóðkunnu snilld og gainansemi, í Sögu úr síldinni: „Öreigar verða þéttcfnaðir á ekki lengri tíma en sem svarar einu miðlungsfylliríi, gjaldþrota menn eru flognir upp í loftið eins og tappi úr rófubyssu áður en maður hefur svigrúm til að snússa sig“. Hinar grátbroslegu lýsingar Laxness í Jiessari frægu smásögu, á ákafa og dugnaði fólksins í austfirzka sjávarþorpinu við að láta ekki silfur hafsins ganga úr greipum sér, eru víst eina lýsingin í íslenzkum bókmenntum af þessum atvinnuvegi, sem reisti heil sjávarþorp og markaði tímamót í atvinnusögu heils landsfjórðungs. Afrakstur landnótaveiðanna Að lokum er svo rétt að drepa lítillega á sögu- legar staðreyndir um afrakstur landnótaveiðanna. Heimildir eru teknar úr „Þáttum úr sögu Austur- lands“ eftir Halldór Stefánsson, í 4. bindi Austur- lands, safni austfirzkra, fræða. Síldar er fyrst getið á útflutningsskýrslum árið 1867. þá voru fluttar út frá Seyðisfirði 119 tunnur af síld. Þessa síld höfðu Seyðfirðingar veitt sjálfir, en árið eftir, 1808, komu tvö útgerðarfélög frá Mandal í Noregi til Seyðisfjarðar. Framkvæmda- stjórar félaganna voru maður að nafni Jakobsen og hinn landskunni athafnamaður Ottó Watline. Norðmennirnir veiddu vel um sumarið og fluttu veiðina til Noregs, um 2500 tunnur af saltsíld, annað eins er talið að þeir hafi misst úr lásum í stormi um haustið. Með þessum aðgerðum hófst síldveiðin á Austfjörðum. Jakobsensfélagið kom aft- ur næsta ár, cn Ottó Wathne kom ekki aftur fyrr en 1880, en þá settist hann að á Seyðisfirði fyrir fullt og allt. Næstu árin var stopul veiði, enda tíðarfar kalt og stundum ísaár, en 1875 glæddist veiðin aftur á ný og þá bættust æ fleiri Norðmenn í hópinn, sem leitaði til landsins, bæði á Seyðisfirði og á öðrum Austfjörðum. Nafnkunnastur þeirra, sem nú komu til landsins og settust að, voru, auk Wathnebræðra á Seyðisfirði, þeir Klausen og Randulf, sem tóku bólfestu við Eskifjörð og Reyðarfjörð, og Thoresen á Mjóafirði. Á Eskifirði var líka sænskt veiðifélag í nokkur ár. Frá Eskifirði hófst síldarútflutningur árið 1874 og upp frá því eru útflutningshafnirnar tvær, Seyð- isfjörður og Eskifjörður, einu löggiltu verzlunar- staðirnir á veiðisvæðinu, og stóð svo að mestu a. m. k. fram um 1890. Árið 1874 var bezta veiði- árið, sem komið hafði fram að því. Þá var heildar- útflutningurinn 8694 tunnur, svo til allt frá Seyðis- firði. Á næstu árum eykst veiðin jafnt og þétt, en nær hámarki á árunum 1880—1885, sem á Austur- landi eru kölluð síldarárin miklu. 1881 skiptir um. og eftir það er veiðin meiri á suðurfjörðunum, enda fleiri nótalög að veiðum þar samanlagt. Heildarú tf 1 utn i ngu r þessara miklu veiðiára var, skv. útf 1 utningsskýrslum frá Seyðisfirði og Eskifirði, Árið 1880 93040 tunnur — 1881 76777 — — 1882 48108 — — 1883 23176 _ — 1884 27257 — — 1885 23200 — eða samtals þessi fimm ár 291558 tunnur. Mestur var útflutningurinn frá Seyðisfirði árið 1880, 60170 tunnur og frá Eskifirði árið 1881, 45356 tunnur. Árið 1884 cr útflutningurinn frá Seyðisfirði svo kominn niður í 2457 tunnur, en frá Eskifirði eru þá fluttar út 24800 tunnur. Árið 1886 er heildar- útflutningurinn aðeins 9480 tunnur, og upp úr því fór veiðin að verða stopulli, og aðeins þrisvar sinn- um til aldamóta verður hún meiri, en það var árin 1891, 1893 og 1895. Aldamótaárið er útflutningur- inn aðeins 6697 tunnur. Um 1890 hættu Norðmenn að mestu árlcgum hingaðkomum sínum til sumarsíldveiða, en þeir Norðmenn, sem búscttir voru hér, tóku að stunda þorskveiðar og verzlun jafnframt.. Þátttaka fslend- inga í síldveiðunum var nokkur frá byrjun, og voru þeir ýmist einir um þær, eða í félagi við Norðmenn. 32 FH.TAI.S VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.