Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1964, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.01.1964, Blaðsíða 10
VERÐUR ÞETTA SÍÐASTA HEIMS- SÝNINGIN AF ÞESSU TAGI? Njáll Símonarson forstjóri Ferðaskrifstofunnar Sögu er nýkominn heim úr Ameríkuferð, og var ferðinni aðallega heitið til að skoða heimssýning- una í New York, sem opnuð verður seinni partinn í apríl. Báðum við Njál um að segja lesendum Frjálsrar verzlunar sitthvað frá þessari stærstu heimssýningu, sem haldin hefur verið til þessa, og varð Njáll vel við þeirri beiðni. — Hver voru tildrög að ferð þinni vestur um haf? — Þannig var mál með vexti, að ég fékk boð frá Pan American, American Express og Hótelsam- bandi Bandaríkjanna um að koma vestur, heim- sækja sýningarsvæði heimssýningarinnar og fleiri staði á austurströnd landsins, sem hópferðir úr öðrum löndum á sýninguna munu eiga kost á að skoða. Þetta boð um að heimsækja sýningarsvæðið áður en sjálf sýningin verður opnuð fengu ferða- skrifstofumenn í öllum heimsálfum, alls nokkuð á þriðja hundrað talsins, og vorum við þar vestra um sama leyti. En ég var eini íslendingurinn í þessum hópi. Tilgangurinn var að vekja athygli á heims- sýningunni og benda okkur, sem vorum ýmist stjórnendur ferðaskrifstofa eða aðrir framámenn í ferðamálum, á sitthvað, sem vel kæmi fyrir okkur að sjá með eigin augum áður en við sendum ferða- hópa vestur eftir að sýningin verður opnuð. Þótt flestir fari til að sjá sýninguna sjálfa, eru samt líkur til, að margir, sem komnir eru langt að, vilji nota tækifærið til að skoða fleira og ferðast nokk- uð um landið áður en haldið er heim aftur, svo sem að skreppa niður til Washington eða Florida, jafnvel sumir alla leið vestur á Kvrrahafsströnd, til Kaliforníu og víðar. — Svo hefur verið farið með ykkur um sýningar- svæðið þvert og endilangt. Hvar er það annars í borginni? — Þessi sýning er haldin á sama stað og heims- sýningin 1939, úti á Long Island. En allar bygg- ingar þeirrar sýningar voru þó löngu horfnar nema sýningarhöll New York-borgar, sem verður notuð aftur nú, að vísu eru einhverjar breytingar gerðar á henni. — En er þetta ekki feiknastórt svæði, eða hvað hefur tekið langan tíma að koma þessu í kring? — Undirbúningur hófst fyrir fjórum árum. Síðan hefur ekkert smáverk verið unnið þarna á þessu 646 dagslátta svæði, þar sem búið er að reisa 175 sýningarhallir, skála og önnur mannvirki. Þarna hafa unnið að staðaldri um átta þúsund manns, en þegar við lituðumst þarna um, virtist geysilegt verk enn óunnið, þótt allar byggingar væru komn- ar undir þak. Enda voru sumir þar svartsýnir á, að hægt yrði að ljúka verkinu áður en opnað yrði 22. apríl. Um miðjan janúar gerði feiknarlegt óveð- ur á þessum slóðum, og það tafði framkvæmdir um nærri hálfan mánuð. Fyrstu tvo dagana okkar í New York var kafaldsslydda og ekki beint glæsi- legt um að litast á sýningarsvæðinu, þar er mýrlent og við óðum víða drullu upp fyrir ökla. En framá- menn sýningarinnar töldu okkur ferðaskrifstofu- mönnum trú um, að þar yrði allt tilbúið — hvað sem það kostaði — þegar sýningin yrði opnuð klukkan tíu árdegis sunnudaginn 22. apríl, þar yrðu þá grænar flatir með útsprungnum blómum, sem við óðum leðjuna í ökla. — Iívað vakti helzt athygli eða hrifningu ykk- ar á svæðinu? — Þar er margt að sjá, sem er ævintýri líkast. Við gengum t. d. í gegnum sýningarhöll General Motors. Þar inni er svokallað „Futurrama“, eins konar framtíðarsjá, því að þar er skyggnzt inn í framtíðina, eins og þeir gera sér í hugarlund að verði umhorfs í heiminum eftir mannsaldur, eða Rætt við Njál Símonarson forstjóra ferðaskrifst. Sögu upp úr aldamótunum næstu. Við settumst upp í vagna, sem ganga eftir teinum, og eftir að lagt er af stað, ökum við framhjá þessum myndum, sem þeir spá að verði hlutar af framtíðinni. Við förum framhjá Suðurheimskautslandinu og sjáum, hvern- ig þeir hugsa sér að koma upp mannabústöðum á því Iítt fýsilega svæði, einnig hvernig græða megi 10 FáJÁÞS VERZPtTN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.