Frjáls verslun - 01.04.1964, Qupperneq 6
Horft yfir Akranes til Akrafjalls.
málið og í hana voru kjörnir, Arnljótur Ólafs-
son, þingm. Borgfirðinga, Benedikt Sveinsson,
konungkjörinn varaþingmaður, og Halldór Frið-
riksson, þingm. Reykjavíkur. Meirihluti nefnd-
arinnar, þeir Arnljótur og Benedikt, gefa út
langt og ítarlegt álit um málið, þar er m. a. rak-
in í stórum dráttum þróunarsaga verzlunarinn-
ar allt frá 17. öld, og bent á hina hægfara breyt-
ingu til batnaðar.
í þessu áliti meirihlutans kemur ennfremur
fram, að nú séu kaupstaðir í öllum sýslum lands-
ins nema þremur, Rangarvallasýslu, en þar er
engin höfn til, Dalasýslu, sem er mjög lítil, og
þaðan er stutt og greið leið til Stykkishólms, og
1 Borgarfjarðarsýslu, þótt þaðan sé langur og
næsta erfiður landvegur til Reykjavíkur, og eins
þótt sjóveg sé farið, en ofan á þann kostnað all-
an, sem því er samfara, bætist nú oftlega stór
skaði, er menn fá hrakninga á leiðinni, og sjór
gengur á bátinn, svo öll matvara, kaffi, sykur,
salt, o. s. frv. skemmist mjög eður ónýtist.
Þetta nefndarálit er allt, all ítarlegt, og í því
eru færð fram mörg rök fyrir nauðsyn málsins
og í lok þess mælir svo meirihlutinn eindregið
með því, að konungi verði send svofelld bænar-
skrá:
1. að hans hátign allra mildilegast vildi lög-
gilda kauptún við Lambhússund á Skipa-
skaga í Borgarfjarðarsýslu, og til vara:
2. Að öllum búsettum fasakaupmönnum á
íslandi sé leyft að reisa sölubúð og verzl-
un við Lambhússund á Skipaskaga í Borg-
arfjarðarsýslu, með þeim rétti og skilmál-
um er segir í opnu bréfi 28. febr. 1836.
Halldór Kr. Friðriksson, sem skipaði minni-
hlutann, gerði hins vegar svofellda grein fyrir
afstöðu sinni til málsins: „Ég get með engu móti
verið samnefndarmönnum mínum samdóma í
skoðun sinni á þessu máli, enda finnst mér ljóst,
að ástæður þeirra eru næsta veikar, þegar þær
eru rétt og hlutdrægnislaust skoðaðar, og málið
er auk þess af þeim skoðað á eina leið, en alls
ekki á það litið, hvort verzluninni yfir höfuð,
muni til eflingar verða.
Það er óþarft fyrir mig, að fara mörgum orð-
um um þetta mál, enda býst ég eigi við, að geta
talið þinginu hughvarf, ef það á annað borð hef-
ur það hugfast, að setja kauptún á hverja vík
6
FKJÁLS VEliZLUN