Frjáls verslun - 01.04.1964, Blaðsíða 14
íbúðar- og verzlunarhús Böðvars Þorvaldssona íbúðarhúsið nær, þar sem Haraldur ólst upp.
Fjær er elzta verzlunarhús á Akranesi, þar sem Böðvar verzlaði í meira en hálfa öld.
að þeir þurftu alltaf að vera að lesa sig til, voru
ekkert annað en loddarar. Við gáfumst upp á
þeiri útgerð, en hún kostaði víst milljón. Nú,
svo höfum við verið að gutla við niðursuðu, seld-
um talsvert af kavíar, eða niðursoðnum þorsk-
hrognum til Grikklands og Englands og gerum
enn. Margar tilraunir gerðm við til að niður-
sjóða síld til útflutnings, en það hefur ekki enn
blessazt, reynzt of dýrt. Þótt varan sé niðursoð-
in og reynist samkepnisfær hvað gæði snertir,
er sagan ekki nema hálfsögð. Það þarf ekki að
ætla sér að setja vöruna á heimsmarkað nema
verja öðru eins fiármagni í auglýsingar og kost-
ar að framleiða vöruna. En við byrjuðum að
vinna karfa hér, og það liðu tvö ár þangað til
aðrir létu sér til hugar koma að hefja karfa-
vinnslu. Þetta atvikaðist nú þannig, að til okk-
ar kom Ameríkumaður, sem hér var á ferð. Hann
gekk í gegnum húsin hjá okkur og sá fáeina
karfa liggjandi á gólfinu og varð að orði. „Hvað,
ég get ekki betur séð en þarna liggi „Ocean
perth“, og það er nú ein eftirsóttasta fisktegund
hjá okkur í Bandaríkjunum. Þetta ættuð þið að
verka og senda okkur vestur.“ Það var nú byrj-
unin. Líkt var það um humarinn, sem til einskis
þótti nýtur til skamms tíma. Það var einstöku
íslendingur, sem komizt hafði á bragðið í út-
löndum og vissi, hvílíkur herramannsmatur
humarinn er. Ég man t. d. eftir þegar ég var í
Sandgerði, þá var Kristín Thoroddsen hjúkr-
unarkona að starfa þar á vegum Rauða kross-
ins. Hún komst að því að þeir veiddu stundum
humar og fleygðu honum jafnóðum fyrir borð
því að hann þótti ekki mannamatur. Og Kristín
fór að biðja þá að gefa sér einn og einn í soðið,
sem þeir gerðu, þó að þeir botnuðu ekki í slíkri
matarlyst. Nú er þetta ein verðmætasta útflutn-
ingsfisktegund okkar. Svona gætum við haldið
áfram endalaust. Það eru miklir framtíðarmögu-
leikar, sem þetta land á og margir ónotaðir til
þessa dags.
— Hverju teljið þér helzt að þakka velgengn-
ina í atvinnurekstri yðar?
— Það eru aðstæðurnar og tíminn, sem skapa
þetta, sagði Haraldur rétt til si svona, þessi út-
gerðarsnillingur, sem tæpast á sína líka í land-
inu.
G. B.
14
FRJÁLS VERZLUN