Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1964, Side 15

Frjáls verslun - 01.04.1964, Side 15
Þórður 1». Þórðarson hjá ein jm af nýju langferðabílunum. ATHAFNAMENN OG FRJÁLST FRAMTAK Þórður Þ. Þórðarson b ifi~e id'astöðva rstjó?~i Hann gengur undir ýmsum nöfnum manna á meðal. Utan héraðs er talað um hann sem „bílakónginn á Akranesi", eða „þrjú Þ á Akra- nesi“ eða „ÞÞÞ“, eins og raunar allir bílarnir hans eru auðkenndir. Akurnesingar nefna hann í sínum hópi sjaldnast annað en Steina í Hvíta- nesi eða Steina bílakóng, en við ókunnuga Þórð Þ. Þeir, sem ekki þeþkkja nægilega til, segja Þórður Þórðarson, en það getur verið villandi, því það er fullt nafn eins sonar hans (einn hinna frægu knattspyrnumanna Akurnesinga, sem fyrstir urðu til að taka íslndsmeistaratitilinn af Reykvíkingum). Bílakóngurinn á Akranesi heit- ir í símaskránni Þórður Þ. Þórðarson (og stend- ur milli-þornið fyrir Þorsteinsson, sem er annað skírnarnafn hans). Bílakóngsheitið hefur hann fengið af því að enginn þar efra hefur um dag- ana flutt eins marga mjólkurbrúsa, mannfólk og annan varning í bílum og Þórður Þ. hann var eiginlega brautryðiandi í landsamgöngum Akurnesinga, byrjaði sem Fordvörubílseigandi fyrir nærri fiörutíu árum, á nú bílastöð með öllum tegundum bíla, 14 alls, og þar á meðal dýrasta bíl, sem nokkur íslendingur hefur keypt til landsins. Þórður Þ(orsteinsson) Þórðarson er fæddur að Leirá í Leirársveit árið 1899, þar sem foreldrar hans bjuggu, Þórður bóndi Þórðarson og Guðný Stefánsdóttir. En frá fimm ára ladri hefur Þórð- ur Þ. átt heima á Akranesi. Upphafið að ævi- starfi hans var það, að hann tók bílpróf hjá Sveini Egilssyni bifreiðakaupmanni í Reykjavík og festi síðan kaup á fyrsta bílnum, sem var Ford-vörubíll, árgerð 1927, og hóf vöruflutninga FRJÁLS VERZLUN 15

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.