Frjáls verslun - 01.04.1964, Blaðsíða 18
Arftaki Tafts
Barry Goldwater var fyrst kjörinn öldunga-
deildarmaður árið 1952 og hafði lítt haft af-
skipti af stjómmálum áður. Hann hefur síðan
notið vaxandi álits og fylgis meðal hægri sinn-
aðri kjósenda í Bandaríkjunum og er löngu orð-
inn óumdeildur leiðtogi hægri arms Repúblik-
anaflokksins, tók við þeirri stöðu af Robert Taft,
einum virtasta stjórnmálamanni Bandaríkjanna
um áratuga skeið.
Skoðanir Goldwaters hafa verið mjög um-
deildar en jafnframt rangsnúnar úr hófi. Og það
er alveg ljóst öllum þeim sem gert hafa tilraun
til þess að kynna sér stefnu hans í innan- og ut-
anríkismálum, að hún á lítið skylt við þá pólitík,
sem blöð og fréttastofnanir um heim allan hafa
eignað honum nú á síðustu mánuðum. Og það
er vissulega ljótur blettur á þessum aðilum
hversu þeir hafa augljóslega reynt að sverta
Goldwater og gera úr honum öfgasinnaðan æs-
ingamann. í þessum efnum hafa blöð og útvarp
á íslandi ekki reynzt barnanna bezt.
í utanríkismálum má segja, að meginlínan í
stefnu Goldwaters sé sú að hinn frjálsi heimur
eigi að stefna að fullum sigri yfir kommúnista-
ríkjunum en ekki láta sér nægja status quo eða
„friðsamlega sambúð“ við þessi ríki.
Meginröksemd þeirra, sem halda fram þessari
skoðun er auðvitað sú, að frjálsar þjóðir muni
aldrei geta treyst því, að kommúnistaríkin haldi
gerða samninga, þau verða aldrei „bona fide“
aðilar að varanlegu samkomulagi milli austurs
og vesturs.
Þá mundi Goldwater verða mun harðari í horn
að taka 1 samningum við bandamenn sína og
ekki láta hlut Bandaríkjanna í þeim að nokkru
ráði. Hann mundi í stuttu máli krefjast þess að
Bandaríkin fengju eitthvað verulegt fyrir sinn
snúð.
í innanlandsmálum mundi Goldwater leitast
við að draga úr áhrifum Sambandsstjórnarinnar
í Washington, en efla hin einstöku fylki Banda-
ríkjanna á ný. Hann mundi berjast gegn veru-
legum afskiptum Sambandsstjórnarinnar af fé-
lagslegum málum og umbótum á því sviði en
leitast við að koma þeim á með frjálsu samstarfi
borgaranna.
Hverjir eru sigurmögnleikar Goldwaters?
En hverjir eru möguleikar Barry Goldwaters
til að sigra Lyndon B. Johnson í kosningunum.
Flestir þeir sem um það hafa skrifað, hafa talið
Johnson algjörlega öruggan um að ná kosningu
og skoðanakannanir hafa bent til hins sama.
Þess ber þó að gæta að skoðanakannanir eru
ekki mikils virði svo löngu fyrir kosningar og
efalaust eiga þær eftir að breytast til muna
Goldwater í vil þegar nær dregur kosningum.
í rauninni renna menn algjörlega blint í sjó-
inn með það, hverja möguleika Goldwater hef-
ur til þess að ná kjöri. Það byggist t. d. mikið á
framvindu kynþáttamálanna fram að kosning-
um, ástandinu í Suður-Vietnam og Laos, Kúbu
o. fl. Á þeim mánuði sem eftir er til kosninga
getur margt gerzt í heiminum, sem aukið get-
ur sigurmöguleika Goldwaters.
Hitt er þó alveg ljóst, að kosningabaráttan
verður mjög hörð og úrslit hennar tvísýnni en
haldið var í fyrstu.
Lyndon Johnson hefur ýmsar veikar hliðar,
sem vafalaust verða notaðar til hins ýtrasta í
kosningabaráttunni.
Margir óttast afleiðingar þess, ef Barry Gold-
water nær kjöri. Mér er nær að halda að það
fari fyrir honum, sem um svo marga aðra, að
skoðanir hans breytast, þegar og ef hann fær
tækifæri til þess að glíma við vandamálin og ber
ábyrgð á lausn þeirra. Forsetaembættið í Banda-
ríkjunum hefur breytt meiri mönnum en öld-
ungadeildarmanninum frá Arizona.
S. G.
„Ég er orðinn dauðleiður á því að fá sand í
augun í hvert sinn, sem ég þarf að fela mig.“
18
FRJÁLS VEKZLUN