Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1964, Side 21

Frjáls verslun - 01.04.1964, Side 21
Thomson lávarður af Fleet Street Cecil King hefur nú sem kunugt er ráðizt í það mikla ævintýri að hefja útgáfu nýs dag- blaðs í Bretlandi en það hefur ekki gerzt í ára- tugi. The Sun hóf göngu sína um leið og Daily Herald hætti útkomu. The Sun höfðar fyrst og fremst til kynslóðar atómaldarinnar, það segist Cecil King vera blað hins nýja tíma. Of snemmt er enn að meta það hvort þetta áhættusama fyrirtæki Kings heppnast eður ekki en eitt er víst: bar- áttan í Fleet Street fer harðnandi með hverju ári sem líður og það verður sífellt erfiðara að halda sér á floti. r--------------------------------------------n Gamalt útgáfufyrirtæki á heljarþröm Eitt elzta og virtasta útgáfufyrirtæki í Bandaríkjunum er Curtis Publishing Co., sem gefur m. a. út vikublaðið Saturday Evening Post, sem töluvert er lesið hér á íslandi og er stofnað af Beniamin Frank- lin, Ladies’ Home Journal, American Home, Holiday og barnablaðið Jack & Jill. Curtis Publishing Co. hefur á síðustu ár- um átt við vaxandi fjárhagsörðugleika að etja og hefur frá árinu 1961 tapað 34.5 milljónum dala. Á árinu 1963 var fyrirtæk- ið nær orðið gjaldþrota en var á elleftu stund bjargað með stórláni frá sex bönk- um í Bandaríkjunum. Ein afleiðing þess ástands var m. a. það að Post hætti að koma út vikulega en kemur nú út 45 sinnum á ári. Árið 1962 var hinn eineygði Matthew J. Culligan, auglýsingamaður frá Madison Avenue, ráðinn aðalforstjóri fyrirtækisins og til þess settur að bjarga því frá yfirvof- andi falli. í fyrstu virtist sem Culligan ætl- aði að takast þetta en upp á síðkastið hef- ur aftur sigið á ógæfuhliðina og nú fyrir stuttu gerðist það sem þótti stórtíðindi í Bandaríkjunum að nokkrir samstarfsmenn Culligans gerðu uppreisn gegn honum og kröfðust þess að hann yrði settur frá. Culli- gan svaraði með því að leysa þá frá störf- um fyrst um sinn og var þeirra á meðal aðalritstjóri Saturday Evening Post, Clay Blair. Ætlunin hafði verið að halda þessum miklu deilum leyndum en New York Times tókst að komast yfir fréttina og birti hana á fyrstu síðu. Erfitt er að segia um endalok þessara átaka en vissulega væri hryggilegt ef þessu gamalkunna útgáfufyrirtæki tækist ekki að komast á réttan kjöl á ný. FRJÁLS VERZLUN 21

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.