Frjáls verslun - 01.04.1964, Side 22
Skólauppsögn
Yerzlunarskóía íslands
30. apríl 1964
(Úrdráttur úr ræ?u, sem formaður skólanefndar
Magnús J. Brynjólfsson flutti við það tækifæri)
Það hefur þótt viðeigandi að ég, sem formað-
ur skólanefndar, flytti hér nokkurt yfirlit um
byggingu nýja skólahússins, sem þó er aðeins
fyrsti áfangi að væntanlegu fimm hæða húsi.
Að því er ég bezt veit mun þetta vera 1 fyrsta
sinn, sem skólauppsögn fer fram í eigin húsa-
kynnum og er þar með glæsilegum áfanga náð
á þessu 59. aldurs ári Verzlunarskóla íslands.
Það háði nokkru, að framkvæmdir hæfust,
að ekki voru allir ráðamen ásáttir um, hvort
byggja skyldi á allri lóð skólans, eða í áföngum,
en það varð ofaná að byggja í áföngum og hefur
það áreiðanlega verið til láns fyrir skólann.
Skólanefndina skipa nú sömu menn og þegar
verkið var hafið, en skólanefnd hefur haft yfir-
umsjón með öllum framkvæmdum frá byrjun,
þótt mest hafi mætt á formanni og Gunnari Ás-
geirssyni, stórkaupmanni. Aðrir skólanefndar-
menn eru Sigurbjörn Þorbjörnsson, ríkisskatt-
stjóri, Gunnar Magnússon, aðalbókari, og Þor-
varður J. Júlíusson, framkvæmdarstjóri Verzlun-
arráðs íslands.
Skólabyggingin strandar á klöpp og var því
ákveðið að hafa engan kjallara, enda má bygg-
ingin vera fimm hæðir. Framkvæmdir hófust
um vorið 1960 og byggingin orðin því næst fok-
held um áramótin 1960—61. Vinna féll svo nið-
ur í næstum því eitt ár vegna fjárskorts.
Framkvæmdir hófust svo aftur af fullum
krafti og efri hæðin fullgerð og tekin í notkun
haustið 1962. Fjórar skólastofur, kennarastofa
og snvrtiherbe^gi eru á hæðinni. Rúma þær sam-
tals 112 nemendur.
Samkomusalurinn var látinn mæta afgangi,
bæði vegna þess að hann er lang dýrasti hluti
hússins svo og þess, að koma húsinu sem fyrst
í gagnið. Hér, sem áður, réði eingöngu fjárskort-
ur.
Hefur svo smátt og smátt verið unnið að því
að fullgera salinn og er því nú að mestu lokið.
Ennþá er þó eftir að ljúka við eldhús og kaffi-
stofu í norðurenda hússins, en verður vonandi
hægt að taka í notkun í haust.
Byggingin stendur á lóð gamla Verzlunarskól-
ans. Samþykkt hefur verið, að þessar tvær bygg-
ingar verði sameinaðar í eina sjálfseignarstofn-
un undir yfirstjórn Verzlunarráðs íslands. Kem-
ur það til framkvæmda um næstu áramót.
Öll lóðin er 1564,7 fermetrar að ummáli, en
nýja skólahúsið tekur til ca. 500 fermetra. Ef
fyrirhugað skipulag Hellusunds verður sam-
þykkt í borgarráði, stækkar lóðin um nær helm-
ing og þarf þá ekki að kvíða því, að stækkunar
möguleikar verði ekki fyrir höndum.
Neðri hæð hússins, samkomusalurinn ásamt
leikpalli (sem hringstigi tengir við þrjú búnings-
herbergi, W. C., loftræstingarvél og geymslu)
kaffistofu, eldhúsi, miðstöðvarherbergi, fata-
geymslu og W. C. er 487,33 fermetrar að rúm-
máli. Efri hæðin, skólastofurnar eru 330,6 fer-
metrar. Þær eru fjórar, hver um sig 6,40x6,50
metrar. Öll er byggingin 3,833 kúbik metrar og
er kostnaðarverð hennar kr. 7.300.000,00, þar í
innifalið öll húsgögn og annað þar að lútandi.
Kúbik- eða rúmmetrinn kemur því uppá ca.
kr. 1850,00 og má telja það mjög vel sloppið.
Eftir er að ganga frá lóðinni og bílastæðum, en
verður vonandi búið fyrir haustið. Ennfremur
á skólinn 250 fermetra lóð við Grundarstíg, aust-
anvert við gamla skólahúsið, og er fyrirhugað
að taka hana líka undir bílastæði.
Þór Sandholt arkitekt og skólastjóri Iðnskól-
ans hefur teiknað húsið. Ólafur Pálsson, bygg-
ingarmeistari og Ingimar Haraldsson húsasmíða-
meistari hafa séð um byggingu hússins. Vil ég
þakka þeim öllum ágæta samvinnu, lipurð og
ráðleggingar. Valtýr Lúðvígsson, rafvirkjameist-
ari, hefur séð um allar raflagnir, Sverrir um
allar ljósateikningar o,. fl., Guðmundur Finn-
bogason, pípulagningameistari, allar pípu- og
skólpleiðslulagnir, Kristján Flygering og Pétur
Pálsson, verkfræðingur, allar miðstöðva- og loft-
ræstingateikningar, Valur Einarsson, veggfóðra-
meistari, allar flísalagnir á loft, gólf og veggi,
Hákon Jónsson, málarameistari, alla málningu.
22
FRJÁLS VERZLUN