Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1965, Side 9

Frjáls verslun - 01.05.1965, Side 9
Merkilegt brautr yðj endastarf útgefenda Iceland Review í síðasta hefti tímaritsins „Iceland Review,, ritar Ingólfur Jónsson, flugmálaráðherra, stutt ávarp sem hann nefnir „Brcaking the Isolation“ — einangrun- in rofin. Á ráðherrann þar við brautryðjendastarf íslenzku flugfélaganna, — en þessi orð hans eiga að vissu leyti erindi við tímaritið sjálft, sem nú hefur verið gefið út í tvö ár samfellt. Iceland Review hefur á sínu sviði unnið merkilegt braut- ryðjendastarf og vissulega orðið til þess að rjúfa einangrun landsins á sviði aðgengilegra upplýsinga um það, fólkið sem það byggir og atvinnuhætti þess. Er „Iceland Review“ hóf göngu sína má segja að um langt skeið hafi ríkt algjört ófremdarástand í þessum efnum, og má segja að raunar einu að- gengilegu upplýsingarnar um land og þjóð liafi verið að finna í bæklingum flugfélaganna, auk nokk- urra annarra bæklinga svo sem „Facts About Ice- land“. Um beina og óbeina kynningu á viðskiptum íslands almennt var þó alls ekki að ræða fyrr en útgáfa Iceland Review hófst, en að henni standa tveir ungir rnenn, áður skólafélagar, síðar sam- starfsmenn í blaðamennsku, þótt sinn væri á hvoru blaðinu, Morgunblaðinu og Tímanum. Þeir eru Har- aldur J. Hamar, blaðamaður á Morgunblaðinu, og Haraldur J. Hamar og Hexmir Hannesson Heimir Hannesson, nú lögfræðingur hjá Seðlabank- anum. Þótt tímarit þeirra sé enn ungt að árum, hefur það þegar sannað ágæti sitt og þá þörf, sem á útgáfu þess er, og að öðrum tímaritum hérlend- um ólöstuðum, má ugglaust telja það hið vandað- asta að gerð og öllum frágangi. Við hittum fyrir skömmu Ilarald og Heimi að máli og ræddum við þá um stund um Iceland Review. — Hvað kom til að þið félagar réðust í þessa útgáfu? — Það var fyrst og fremst það, að við höfðum orðið þess varir á ferðalögum okkar erlendis — sem straumsins á þjóðarbúskapinn, hvaða áhrif hann hefur á atvinnustigið og víxlverkanir hans við aðr- ar atvinnugreinar. Hver er arðsemi af móttöku og fyrirgreiðslu við erlenda ferðamenn borið saman við arðsemi annarra atvinnugreina? Fyrirgreiðslu við erlenda ferðamenn á því aðeins að annast að að því sé hagur. Að fenginni jákvæðri niðurstöðu ber síðan að leita að hagkvæmustu leiðinni til að hagnýta þennan markað, byggja á ráðin um hag- kvæmustu fjárfestingu og staðsetningu hennar. Þannig gæti hún orðið liður í byggðaáætlunum, og aukinni velferð. FRJÁI/S VKRZLTJN 9

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.