Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1965, Page 12

Frjáls verslun - 01.05.1965, Page 12
Sfórhöföingleg gjöf til Yerzlunarráðs íslands Páll Stefánsson frá Þverá og kona hans ánafna því öllum eignum sínum Þann 26. ágúst 1952 lézt í Reykjavík Páll Stefáns- son, stórkaupmaður frá Þverá. Áður en hann lézt, hafði Páll og kona hans, frú Hallfríður Stefánsson, fædd Proppé, skýrt Verzlunarráði íslands svo frá, að þau hjónin myndu ánafna Verzlunarráðinu öll- um eignum þeirra, að því hjónanna, sem lengur lifði, gengnu. Páll lézt eins og fyrr getur í ágúst 1952, en á sl. vori andaðist frú Fríða Stefánsson. Kom þá í Ijós erfðaskrá þeirra hjóna, dagsett 6. maí 1942, þar sem þau ánafna Verzlunarráðinu eignum sínum, og skulu þær renna til stofnunar sérstaks sjóðs, sem styrkja á unga verzlunarmenn til náms í verzlunarfræðum erlendis. Á aðalfundi Verzlunarráðs Islands 28. maí 1953, skýrði þáverandi formaður þess, Eggert Kristjáns- son, stórkaupmaður, frá hinni höfðinglegu gjöf þeirra hjóna, og sagði þá m. a.: „Ég hygg, að flestir okkar, sem hér eru saman komnir, höfum þekkt Pál heitinn Stefánsson og þann brennandi áhuga, sem hann hafði fyrir málefnum verzlunarstéttar- innar og þá fyrst og fremst fyrir því að frjáls verzl- un mætti jafnan ríkja hér á landi. Hann var einnig mjög áhugasamur um velferð og hag Verzlunar- skóla íslands og fór eigi dult með þá skoðun sína, að vel menntuð verzlunarstétt væri metnaðarmál hverrar þjóðar og góð verzlunarmenntun væri undirstöðuatriði þess, að stéttin gæti leyst starf sitt af hendi í þágu alþjóðar á þann hátt, sem bezt verður á kosið, en eins og ég sagði áðan var algert frelsi í verzlun og viðskiptum hans hjartans mál.“ Páll Stefánsson var fæddur 18. maí 1869 að Þverá í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann starfaði m. a. við Thomsensverzlun í Reykjavík, var um tíma umferðarsali, en sneri sér síðan að verzlun með bíla og bílahluti, og var sú verzlun fyrsta og elzta sérverzlun landsins í sinni grein. Frú Fríða Proppé Stefánsson var fædd 7. marz 1881, dóttir Claus E. D. Proppé, fyrsta bnkara- meistarans í Hafnarfirði. Hér er á eftir birt erfðaskrá þeirra hjón óstytt, svo og stutt æviferilságrip Páls Stefánssonar, sem hann tók sjálfur saman á 76. afmælisdegi sínum 1942. Erfðaskráiii „Við undirrituð hjón, ég P. Stefánsson frá Þverá og ég Hallfríður Stefánsson, fædd Proppé, sem eig- um enga afkomendur, gjörum hérmeð svofellda ARFLEIÐSLUSKRÁ: Hvort okkar sem lengur lifir skal erfa Jiað, sem fyrr deyr, að öllum eignum þess, föstum og lausum. Eftir lát þess okkar, sem lengur lifir, skulu allar skuldlausar eignir dánarbúsins ganga til Verzlunar- ráðs íslands. Skal Verzlunarráðið stofna sjóð af erðafjármununum, sem nefnist Sjóður Fríðu Proppé og P. Stefánssonar frá Þverá. Fjárhagsár sjóðsins skal teljast frá 7. marz ár hvert til jafnlengdar næsta ár, og stjórnar Verzl- unarráðið sjóðnum og annast um ávöxtun fjármuna hans, á sem tryggilegastan hátt. Verði fjármunir dánarbús arfleiðanda þess, er lengur lifir, að ein- hverju leyti fasteignir eða verzlun í rekstri, skal Verzlunarráðið annað hvort sjá um að ná sem mest- um arði af fasteigninni og reka verzlunina áfram á sem haganlegastan hátt, eða selja þessar eignir þannig,, að sem bezt verð fáist fyrir þær, allt eftir því sem vænlegast má telja fyrir sjóðinn. Þó má hvorki verzlun né fasteignir búsins komast í hendur neinnar einkasölu né samvinnufélags til eignar né umráða. Verzlunarráðið annast um styrkveitingar úr 12 FRJÁLS VBRZIjTTN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.