Frjáls verslun - 01.05.1965, Síða 18
Dr. Jón Gíslason, skólastióri:
r
Verzlunarskóli Islands sextíu ára
1905-1965
Verzlunarskóli íslands varð sextuyur á þessu ári. í því
tilejni er hér birt rœða dr. Jóns Gíslasonar, skólastjóra,
er hann jlutti við sctningu skólans í haust.
Verzlunarskóli íslands var, sem kunnugt er, stofn-
aður árið 1905. Verður hann því sextugur á þessu
ári. Skólastarfið hófst 12. október 1905.
Fimmtugsafmælis skólans var minnzt á svo veg-
legan og myndarlegan hátt árið 1955, að það mætti
ofrausn kalla, ef efnt væri til sérstakra hátíða-
halda nú, aðeins að 10 árum liðnum. Þá var m. a.
gefið út allstórt minningarrit, hátíðleg setningar-
athöfn fór fram í Þjóðleikhúsinu, lagðir Aroru blóm-
sveigar á leiði látinna skólastjóra og sérstök út-
varpsdagskrá var skólanum helguð um kvöldið, auk
þess sem athöfninni í Þjóðleikhúsinu var útvarpað
sérstaklega. Að kveldi hátíðadagsins, sem var laug-
ardagurinn 15. október, voru veizlur haldnar að
Hótel Borg og í Sjálfstæðishúsinu. Þóttu öll þessi
hátíðahöld hafa farið fram með miklum myndar-
brag.
Nú, á sextugsafmæli skólans, mun samt engan
veginn þykja óviðeigandi að árna honum heilla, þó
að í fáum orðum sé. Var raunar þessara tímamóta
að nokkru getið við skólaslit í vor. Er vér erum
staddir í áfanga sem þessum, gefst. oss einnig færi
á að líta um öxl til liðinna daga og jafnvel getur
oss stundum órað fyrir hinu ókomna, sem framtíð-
in ber í skauti.
Þegar þjóð vor hafði loks öðlazt hið langþráða
verzlunarfrelsi, kom brátt í ljós, að landsmenn
voru ærið varbúnir að hagnýta sér það, af því að
þá brast þekking á verzlun og viðskiptum. Illu
heilli liðu svo margir áratugir, að eigi var hafizt
handa um að ráða hér bót á með innlendum skóla.
Mun sá dráttur hafa orðið þjóðinni ærið dýr.
Um aldamótin 1900 fer loks að rofa til. Þá er
gerð tilraun til að halda uppi kveldskóla í verzl-
unargreinum hér í Reykjavík. Forvígismaður þess-
arar hreyfingar var Þorlákur O. Johnsen, kaup-
maður, sem um margt var á undan sinni samtíð.
Fyrir sameiginlegt átak Kaupmannafélagsins og
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur var Verzlunar-
skóla íslands loks komið á laggirnar árið 1905.
Skólinn var í fyrstu tveggja ára skóli, sem skipt-
ist í efri og neðri deild. Auk þess var starfrækt við
hann undirbúningsdeild. Fyrstu nemendur skólans
voru brautskráðir árið 1907. Aðalnámsgreinir skól-
ans voru íslenzka, erlend tungumál, reikningur og
bókfærsla.
Á þessum grundvelli starfaði skólinn til ársins
1926. Þá var námið lengt um einn vetur. Verzlunar-
skólinn var þá orðin þriggja ára skóli, auk undir-
búningsdeildar, sem var kvöldskóli.
Enn var skólinn Iengdur um einn vetur árið
1935, gerður að fjögurra vetra skóla, auk undir-
búningsdeildar. Var framhaldsdeild einnig starf-
rækt um tíma fyrir þá, sem lokið höfðu burtfarar-
prófi úr 4. bekk.
Er viðskiptadeild var stofnuð við Háskóla fs-
lands, þótt einsætt, að góðir nemendur úr Verzl-
unarskóla íslands yrðu að fá þar tækifæri til fram-
haldsnáms, enda væru engir nemendur í landinu
betur undir slíkt nám búnir. Leiddi þessi þróun til
stofnunar lærdómsdeildar við Verzlunarskóla ís-
lands með réttindum til að brautskrá stúdenta.
Var reglugerð um st.ofnun lærdómsdeildar gefin út
árið 1942. Tók deildin til starfa haustið 1943. Braut-
skráðust fyrstu stúdentar frá Verzlunarskóla Is-
lands vorið 1945. Var það því tuttugasti árgangur
18
FRJÁLS VBRZLUN