Frjáls verslun - 01.05.1965, Page 24
Ég er næstum handviss um að pabbi iór allta! úr buxunum
þegar það þuriti að pressa þær!
★
Heyrt í skóbúð:
— Ég er hræddur um að það sé ekki hægt, frú.
Bara líkþornin eru nr. 34.
★
— Hvernig getur eiginlega staðið á því, að rjóm-
inn er dýrari en mjólkin? spurði nýgifta frúin í
mjólkurbúðinni.
— Það stendur þannig á því, frú mín góð, sagði
afgreiðslustúlkan grafalvarlega, — að það er erfið-
ara að fá kýrnar til að setjast á litlu hyrnurnar.
★
Maður nokkur lézt og barði að dyrum í Gullna
hliðinu. Sankti Pétur opnaði og leit lit.
— Hvað viltu?
— Ég er dauður og vil gjarnan komast inn.
— Ég þekki þig ekki!
— Þekkirðu mig ekki? Það er ómögulegt. Ég er
nýbúinn að gefa Hjálpræðishernum 10.000 krónur,
trúboðinu 10.000 krónur og 10.000 krónur til heim-
ilis fyrir vandræðastúlkur!
Sankti Pétur kallaði á gjaldkera himnaríkis:
— Borgaðu þessum manni 30.000 krónur og sendu
hann til helvítis.
★
— Læknir. Ég vildi gjarnan að þér rannsökuðu
mig náið, og kæmuzt að niðurstöðu hvað að mér
gengur.
Hann rannsakaði hana frá hvirfli til ilja.
— Það er þrennt, sem ég vildi segja yður, sagði
hann síðan. — í fyrsta lagi ættuð þér að léttast um
15 kíló. I öðru lagi reykið þér alltof mikið. Hend-
urnar á yður eru gular. Og í þriðja lagi býr læknir-
inn á næstu hæð. Ég er Ijósmyndari.
★
Hannes litli hafði verið í kirkju í fyrsta sinn. Að
messu lokinni var hann spurður Iivernig honum
hefði þótt.
— Ja, tónlistin var ágæt, en fréttirnar voru ekk-
ert sérstakar.
★
Ertu brjálaður. Du Pont gerði mér betra tilboð en þetta!
24
FRJÁLS VERZLUN