Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1971, Qupperneq 9

Frjáls verslun - 01.07.1971, Qupperneq 9
gagnvart samkeppni við vöru- bifreiðar, t. d. í þjónustu eins og að sækja vörur og skila þeim. Á heildina litið, virðist i verulegum atriðum skorta á, að fylgt sé eftir endurnýj- un skipakostsins með viðeig- andi breytingum á þjónustu- háttum, í þeim tilgangi að nýta mikla fjárfestingu til að gera þjónustuna sem bezta og sam- keppnishæfnina sömuleiðis, þannig að reksturinn standi undir sér svo sem nokkur kost- ur er. Skipin eru það dýrasta í rekstri Skipaútgerðarinnar, og þá verður að ætlast til að þau séu nýtt með öllum hugs- anlegum ráðum, sem samræm- ast tilgangi útgerðarinnar. Höfirs í Hornafiröi Þar er mestur uppgangur og aEEt á kafi í athafnasemi Þegar minnzt hefur verið á Höfn í Hornafirði undaniarin ár, hefur ósjálfrátt hvarflað að mönnum ævintýri, þetta dul- úðarfulla, en óneitanlega oft- ast skemmtilega hugtak. Það er heldur enginn vafi á því, að á Höfn er nú mestur uppgangur á íslandi, þar sem bær rís í tiltölulegri einangrun og til- tölulega á eigin spýtur — af eigin afli og útsjónarsemi, sem nýta mikia möguleika. Einn Hafnarbúi talaði á dögunum við FV um „vinnuþrælkun", ekki þó þannig, að fólk væri í ánauð, heldur að það yrði að leggja svo hart að sér til að rísa undir umsvifunum. Og allt byggist þetta á fiskinum, þorsk- fiski og humri, sem hvor tveggja leggja leiðir sínar við bæjardyr Hornfirðinga, og því, að fiskurinn er nýttur af virð- ingu, sem matvara og lostæti. Fiskur frá Höfn er drjúg tekju- lind þjóðarbús og gjaldeyris- sjóða, bæði fyrir magn og gæði — og þá ekki sízt sérstök gæði, sem hlotið hafa viðurkenningu matvandra kaupenda um víða veröld. „Það er óhætt að segja, að hér sé og hafi verið síðasta ára- tug allt í uppbyggingu,“ sagði Sigurður Hjaltason, oddviti Hafnarhrepps í spjalli við FV. „Það má stikla á stóru. í fyrra var lokið við byggingu húss fyrir Póst og síma og sjálfvirk símstöð tekin í notkun í desem- ber 1970. í vetur var lokið við byggingu verksmiðju og þróa fyrir Fiskimjölsverk- smiðju Hornafjarðar hf., sem stofnuð var fyrir fáeinum miss- erum, en hlutafé þess félags er 7 milljónir, þar af 40% í eigu Kaupfélags Austur-Skaftfell- inga. Þá var einnig lokið fyrir nokkrum mánuðum byggingu húss fyrir Veiðarfæragerð Hornafjarðar hf., og vinnur það fyrirtæki nú ýmis veiðar- færi fyrir bátana hér eystra. Nýlokið er helmings stækkun gistirýmis hótelsins, og getur Hótel Höfn nú hýst 60-70 manns og veitir ekki af, bæði vegna síaukins íerðamanna- straums og húsnæðisskorts fyr- ir aðkomið vinnuafl, sem er hér nú orðið að heita má allt árið meira og minna. Um þessar mundir er verið að leggja loka- hönd á byggingu Landsbank- ans, útibússtjórinn, Jón Júlíus- son, er kominn hingað, og úti- búið verður opnað á næstunni. Þá er í byggingu ráðhús, þar sem verða skrifstofur hrepps- ins, lögreglustöð og héraðs- bókasafn. Standa vonir til að allt húsið verði fokhelt fyrir veturinn. Hafin er bygging nýs frystihúss KAS og nýrrar mjólkurstöðvar og á döfinni er að byggja stórt verkstæðishús, þar sem þrjú vélaverkstæði sameinast um eitt deildaskipt verkstæði og með þátttöku fleiri aðila, og loks er unnið að undirbúningi skólabygging- ar, gagnfræðaskóla og íþrótta- Hafnargerð í Höfn 1967-68. Nú er framundan nýtt átak á sama sviði. FV 7 1971 7

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.