Frjáls verslun - 01.07.1971, Blaðsíða 11
húss, en lauslega má áætla að
fyrstu tveir áfangarnir kosti
um 50 milljónir. ítsúðarhús eru
mörg í smíðum, á 4. tug, þar
á meðal er dýralæknisbústaður,
sem ljúka á við á þessu ári.
Við höfum hér einnig einn
mannalækni, en vantar sjúkra-
skýli, og ríkir mikill áhugi á
að koma því upp hið fyrsta,
enda mikil og vaxandi þörf fyr-
ir það.
Á árunum 1967-68 var gert
hér stórt átak í hafnarmálum,
byggð ný hafskipabryggja og
mikið dýpkað. í sumar á að
endurbyggja gömlu hafskipa-
bryggjuna og dýpka meira, ef
tæki fæst til þess, og fram-
undan er einnig að bæta við
viðlegukant, svo og að byggja
bryggju við nýja frystihúsið,
þegar þar að kemur.
Þá er gatnagerð ótalin. Á
undanförnum árum höfum við
Rafreiknar
smátt og smátt verið að steypa
aðalgötuna hér á Höfn, Hafnar-
braut, og er búið að steypa
um hálfan kílómetra. í sumar
var ætlunin að steypa 375
metra til viðbótar og ljúka að
mestu við götuna. Óvíst er,
hvcrt það tekst, þar sem eng-
inn hefur enn fengizt til að
annast verkið; það var boðið
út, en enginn bauð, og við höf-
um ekki aflögu mannskap.“
— Ykkur vantar fólk til
starfa?
„Já, það fer ekki á milli
mála, sérstaklega vantar okk-
ur iðnaðarmenn í byggingar-
iðnaðinn, eins og stendur. Það
dugir ekki til, þótt hér fjölgi
um 30-40 manns á ári. Á síð-
asta manntali taldist hér 901
íbúi, og þeir verða því væntan-
lega crðnir 1000 á næsta eða
þar næsta ári. Fólki myndi
íjölga örar, ef við gætum boð-
ið húsnæði, og það er fyrir
hendi áhugi á að nýta löggjöf-
ina um byggingarfélög verka-
manna og byggja fjölbýlishús,
ef þá eitthvert vinnuafl fæst
til þess. Við gætum án efa
fyllt slíkt hús á klukkutíma,
ef það stæði hér einn daginn.
Og það er einnig hagsmuna-
mál hreppsins, að byggðin þétt-
ist, það er dýrt að leggja göt-
ur og lagnir eingöngu fyrir
einbýlishús, og hér eru heldur
engin gatnagerðargjöld inn-
heimt enn sem komið er.“
— Hvernig er skipulag á
vegi statt?
„Staðfest skipulag er til frá
1961, en það er þegar farið að
byggja inn fyrir það og á upp-
fyllingu, sem síðan hefur verið
gerð. Það er bess vegna orðin
b~ýn þörf á að fá nýtt heildar-
skipulag, svo að ekki fari allt
úr skorðum."
Rekstur, sem kostar 100 mill-
jónir á ári, samræming og
mótun framtíðarstefnu nauðsyn
í hugskoti almúgafólks eru
rafreiknar nokkuð, sem hulið
er í magnaðri tækniþoku aldar-
farsins og ögrandi framtíðar-
áformum mannkynsins. Raf-
reiknarnir eru vissulega stór-
fenglegar vélar, þær leysa af
hólmi reiknistokk og pírum-
pár, líkt og 20 tonna véiskófla
rekuna. En þeir eru þó ekki
heldur meira en það, sem mönn-
unum hefur tekizt að finna upp.
Það var bví ofgert, þegar mál-
snillingar tóku upp á þvi að
kalla rafreiknana vélheila á ár-
dögum hér. Svo slæmir eru þeir
ekki og ómannlegir.
100 MIILJÓNA REKSTUR.
Nýlega var haldin ráðstefna
um rafreiknamál hér á landi.
Raíreiknar: Leysa mannshugann undan ýmsu erfiðinu, jafnvel mannshöndina líka. Hér er vöru-
geymslu stjórnað með rafreikni.
FV 7 1971
9