Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1971, Síða 14

Frjáls verslun - 01.07.1971, Síða 14
Gróðureyðing mætti því segja, að við yrðum 1000 ár að græða upp þessa 30 þús. íerkílómetra — þ.e.a.s. ef það væri svo vel, að við værum núna komnir fyrir gróðureyðinguna. En sannleik- urinn er sá, að landgræðslan í ár hrekkur ekki að neinu ráði umfram það að halda í horf- inu,“ sagði Árni Reynisson framkvæmdastjóri Landvernd- ar í viðtali við FV. ,,Það þarf því augljóslega að gera mikið átak í mörgum greinum til þess að bæta það tjón, sem orðið er. Er margs að gæta í því efni, bæði verður að taka skepnuhald til gagngerðrar endurskcðunar í samræmi við reynzluna og auka landgræðslu stórlega.“ Sau.ðfé gengur á afréttar- löndum, sem víða eru orðin of- beitt. Gróðursvæði afréttanna þarf að auka, en jafnframt þarf að auka frjósemi sauðfjár- ins í þeim tilgangi að fækka lambám, þar sem hver lambá étur á við 7 lömb. Þá þarf e. t. v. að færa sauðfjárrækt- ina hreinlega til í landinu í einstökum tilfellum. Loks þarf að draga úr hrossarækt, og og landgrœðsla. leggja hana niður þar sem hún er stunduð í að því er virðist algeru tilgangsleysi. Það er út- breidd skoðun, að sveitarfélög- in eigi að taka landgræðsluna í sínar hendur, en að ríkið eigi hins vegar að reka þjónustu- miðstöð vegna beinna fram- kvæmda við áburðardreifingu t. d. Talið er, að allra brýn- ustu verkefni í landgræðslu, verkefni, sem ekki þola bið, kosti um 200 milljónir króna. Og mun það bó ekki hrökkva nema til þess að hefja eigin- legt landgræðslustarf, þ. e. að komast frá þeirri varnarbar- áttu, sem nú er háð í mikilli tvísýnu. Sú upphæð mun jafn- vel ekki verða að verulegu gagni, nema annars sé gætt um leið, eins og breytinga í skepnuhaldi. „Það er vaknandi skilningur á nauðsyn landgræðslunnar,“ sagði Árni Reynisson, ,,við höf- um í ár fengið í lið með okk- ur á 4. þúsund manns, sem gefur eitt eða fleiri dagsverk. Og ekkert getur fremur ráðið úrslitum en skilningur og af- staða borgaranna, hvers og eins.“ Blönduós Vaxandi atvinnu- rekstur, örari fólksfjölgun Blönduósingar hafa meira að segja tekið upp útgerð 1 leit að nýjum atvinnugreinum, svo segja má, að talsvert fari fyrir þeirri leit, en árangurinn er líka sá, að fólki fjölgar nú örar á Blönduósi en um langt ára- bil, þó hefur því fjölgað hægt og bítandi. Útgerðin, sem tekin var upp á Blönduósi, var fólg- in í öflun skelfisks, og var fenginn á leigu bátur til veið- anna, en aðstaða í Sláturhúsi KH til vinnslunnar. Nú stend- ur yfir endurbygging Slátur- hússins, í færibandahús, og hefur útgerðin því stöðvazt í bili. Á hinn bóginn hafa tvö ný iðnfyrirtæki skotið upp koll- inum, annars vegar plastgerð, en trefjaplastgerð var fyrir, og hins vegar prjónastofa. Aukinn atvinnurekstur og fólksfjölgun hafa kallað á nýj- ar byggingarframkvæmdir, bæði viðbætur við þjónustu- húsnæði ríkis og hrepps og byggingu íbúðarhúsnæðis. Hafa byggingar fyrirtæki ærinn starfa. Þá er Blönduóshreppur að hefja varanlega gerð gatna, og á að leggja slitlag á Húna- braut, sem er aðalgatan utan eða austan Blöndu, þar sem uppbyggingin á Blönduósi und- anfarin ár hefur mestmegnis átt sér stað. Freyr Fær aðeins ritstjóralaunin Fyrir skömmu var sagt frá því hér í FV, að nokkur blöð og timarit fengju styrki frá ríkinu í einu og öðru formi, eða væru keypt í verulegum mæli til ríkisins. Þar var bún- aðarblaðið Freyr sagt efst á blaði. Búnaðarmálastjóri, Hall- dór Pálsson, hefur nú beðið um leiðréttingu, og er hún sú, að Freyr fái ekki annan styrk en sem svari einum ritstjóralaun- um. — Vegna uppsetningar í fjárlögum, var hins vegar ekki annað að sjá, en styrkur þessi næmi tæplega 1.7 millj. 19 FV 7 1971

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.