Frjáls verslun - 01.07.1971, Side 16
UTLOIXID
Húsbúnaður er stolt Dana í útflutningi . . . og bjórinn er jú betri en hér!
Danmörk
iðnaðurinn við-
búinn inngöngu
i EBE
Ljóst mun nú að Bretar,
Danir, Norðmenn og írar muni
ganga í EBE, eftir að samingum
Breta við bandalagið er lokið
með fullkomnu samkomulagi.
Að vísu eiga eftir að fara fram
þjóðaratkvæðagreiðslur í Dan-
mörku og Noregi um aðiid, en
flestir telja líklegt að aðildin
verði samþykkt. Allar þjóðirn-
ar hefja nú umfangsmikinn
undirbúning og úttekt á at-
vinnuvegum sínum til að vera
tilbúnar er aðildin verður form-
leg. Nú fyrir skömmu var hald-
inn fundur í iðnaðarráði Dan-
merkur og að honum loknum
ræddi formaður ráðsins Arnth-
Jensen við fréttamenn þar sem
hann sagði m. a.:
„Danskur iðnaður er tilbúinn
til inngöngu í EBE, en þarf á
meira fjármagni að halda. Tekj-
ur okkar eru of litlar og eigin'
fjármögnunargeta ekki nægí-
lega stígandi. Lán eru okkur of
dýr vegna hárra vaxta og þess
vegna teljum við nauðsynlegt
að ríkisstjórnin geri sér grein
fyrir því að það er rangt að
takmarka tekjugetu iðnaðarins.
Tæknilega séð stöndum við
fyllilega jafnfætis öðrum Ev-
rópuþjóðum, þannig að okkur
á ekki að þurfa að vera neitt
að vanbúnaði..“
Jensen sagði að hjá EBE ríkti
góður skilningur á aðstöðu og
vandamálum umsækjendaland-
anna og að vilji værifyrirhendi
að koma til móts við bau. Hann
saeði og að gengju Bretar í
EBE væri það óhjákvæmilegt
fvrir Dani að fylgja á eftir. ef
iðnaður þar í landi ætti að fá
tækifæri til að þróast áfram.
Hann saaði einnig: .Aðild
Dana að EBE hefur í för með
sér áhættu og erfiðleika, en
möguleikarnir til frekari iðn-
þróunar eru langtum mikilvæg-
ari og bvngri á metunum. Hugs-
nm okkur bara þann 300 millj-
óna manna markað, sem opnast
með aðild að EBE. Viðhorfin
verða ný, en að mörgu leyti
verður um að ræða áframhald
þróunarinnar þau 10 ár, sem
við höfum verið aðilar að EFTA.
Danir telja það mikið nauð-
synjamál, að hin Norðurlöndin
og EFTA-löndin nái viðunandi
sátnningum við EBE, þótt ekki
þannig að þau viðskipta-
bönd, sem stofnað hefur ver-
ið til gegnum EFTA, rofni.
Svo virðist sem EBE skilji
þetta og hætta á tolla- og við-
skiptamúrum er því vart fyrir
hendi.“
Að lokum kom það fram hjá
Arnth-Jensen að á sl. ári fluttu
Danir út vörur til EBE-land-
anna f.yrir 3,1 milljarð danskra
króna, þar af fyrir 1,7 milljarð
til V-Þýzkalands.
... og danski
bjórinn eignast
nýja vini
Hans Öström, framkvæmda-
stjóri Tuborg verksmiðjanna
sagði í viðtali fyrir skömmu, að
danskir bjórframleiðendur
hefðu enga ástæðu til að óttast
samkeppnina, sem aðild Dana
að EBE kemur til með að hafa
í för með sér. Þvert á móti,
að með aðildinni opnuðust nýj-
ir möguleikar, markaðir og nýj-
ar leiðir til að auka fjölbreytni
framleiðslunnar.
Öström sagði að nauðsynlegt
væri að halda sífellt áfram að
leita að einhverju nýju og að
starfið á ransóknarstofúhum
þyrfti að miðast við 20 ár fram
í tímann. „Hjá okkur í Tuborg
bíða stærstu verkefnin okkar
á erlenda markaðnum, en við
gætum okkar einnig vel að
14
FV 7 1971