Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1971, Qupperneq 17

Frjáls verslun - 01.07.1971, Qupperneq 17
gleyma ekki né vanrækja heima markaðinn, þó að hlutur okkar þar sé mjög stór. Við megum aldrei láta það henda okkur að gleyma að vín er okkar stærsti keppinautur. Aðild okk- ar að EBE mun hafa það í för með sér að velreknu fyrirtæk- in stækka og dafna og þau sem eru illa rekin munu fá tilhlýði- ieg endalok." Alsír Vaxandi vestræn tækniaðstoð Bandaríkjamenn og aðrar vestrænar þjóðir veita nú í vaxandi mæli tækniaðstoð í Alsír með það fyrir augum að bæta efnahag landsins og auka viðskiptasambönd þess, en þjóðnýting tveggja franskra olíufyrirtækja hefur orðið Al- sírbúum hvatning til þess að leita víðar eftir viðskiptasam- böndum og vinna þannig að efnahagslegu sjálfstæði lands- ins. Lokun franskra markaða kom við kaunin á Alsírbúum, en þeir reyna að bera sig vel og haft er eftir fjármálasér- fræðingi ríkisins að þeir megi vera Frökkum þakklátir fyrir að verða til þess að neyða þá til að endurskoða efnahag þjóðarinnar og markaði henn- ar. Alsír er ekki lengur einka- forðabúr Frakka. Ferðamenn, sem koma til Alsír, veita því athygli, að mik- il áherzla er lögð á þróun iðn- aðar í landinu og hefur verið gerð fjögurra ára áætlun um mikla iðnvæðingu, sem byggist á nýtingu oliu, gass og málma. Áætlun þessi er framkvæmd af ungum sérfræðingum, sem lært hafa erlendis og láta sig stjórnmál engu skipta. Alsír virðist hafa snúið sér að andkommúnistiskum lönd- um og alls staðar um olíu- og gassvæðin má finna menn frá Bandaríkj unum, Frakklandi, Bretlandi, Vestur-Þýzkalandi, Ítalíu, Belgíu og Japan að störfum. Þó eru einnig sérfræð- ingar frá Rússlandi, Austur- Evrópu og Kína að störfum í Alsír, en þeir verkfræðingar og tæknifræðingar, sem hafa yfir- umsjón með höndum eru frá Vestur-Evrópu. Miklir samningar um sölu á jarðgasi hafa orðið til mikils góðs, bæði hvað snertir efna- hag landsins og sjálfsálit þess. Þessir samningar sýna það, að Alsír kemst af án Frakklands. Tákn tímanna er, að enska er nú kennd í sjónvarpinu í Alsír. Franska er þó enn ann- annað mest talaða málið í Alsír, en á tæknisviðinu virðist franskan á undanhaldi fyrir enskunni. Japan Kapífalisfi með kenningar IVIaos að leiðarEjósi Isao Nakauchi er yfirfram- kvæmdastjóri stærsta vöru- markaðahrings í Japan, sem í rauninni er ekki í frásögur færandi. Það sem kannski er í frásögur færandi er, að Isao er kapítalisti og íhaldssamur í stjórnmálum, en mikill aðdá- andi Mao Tse-tungs og í upp- byggingu fyrirtækisins hefur hann haft kenningar Maos að leiðarljósi, eða réttara sagt hernaðarkænsku hans. Fyrirtæki Isaos er fjórtán ára gamalt, en á nú 63 verzl- anir, sem seldu fyrir um 415 milljónir dollara á sl. ári og í ár er gert ráð fyrir um 32% Isao á eftirlitsferð. aukningu, þannig að fyrirtæki hans verður orðið hið stærsta sinnar tegundar í Japan. Verzlunarháttum Isaos hefur verið líkt við byltingu í jap- önsku viðskiptalífi, sem löng- um hefur verið rígbundið i hefðbundnum viðjum, þar sem fyrirtækin hafa staðið saman og haldið verðlaginu nægilega háu til að komast af. Flestar verzlanir og þjónustufyrirtæki í Japan eru með smáu sniði og veltan því lítil. Isao telur aftur á móti að neytendurnir eigi að vera kóngar, en smásöluverzl- anirnar þegnarnir, sem þókn- ist kóngunum með því að selja þeim vörurnar á sem lægstu verði. Þannig túlkar hann eina af grundvallarkenningum Maos. Isao innleiddi vöru- markaði með bandarísku sniði í Japan fyrir 14 árum, hug- myndin féll í góðan jarðveg og fyrirtækið hefur vaxið ár frá ári. Á þessu ári verða opnaðar 17 nýjar verzlanir, þannig að þær verða orðnar 80 í árslok. Flestar verzlanirnar eru í út- hverfum japanskra borga og meðalstórum borgum og þar hefur hann enn eina af grund- vallarkenningum Maos að leið- arljósi. Fyrst á að taka litlu og meðalstóru borgirnar, en stór- borgirnar síðast. Isao hefur farið eigin leiðir í Japan, sem oft hefur mælzt illa fyrir í landi sólarinnar, þar sem hefðbundnar venjur tröll- ríða þjóðfélaginu, Hann hefur í trássi við ráðamenn landbún- aðar í Japan keypt kjöt er- lendis frá, þar sem hann hefur fengið það ódýrast, t. d. frá Ástralíu, appelsínur og greip- aldin frá Bandaríkjunum og ýmsar matartegundir víðsvegar að úr heiminum, svo eitthvað sé nefnt. Isao segist gera sér grein fyr- ir því, að það muni taka lang- an tíma að rjúfa hina hefð- bundnu verndarmúra, en her- för Maos hafi líka tekið langan tíma. Hann lítur á viðskipti sem stríð og segir að forráða- menn fyrirtækja verði að vera kaldrifjaðir og svífast einskis til að sigra í samkeppninni. En Isao er ekki alltaf svo kald- rifjaður, og á dögunum, er hann hlustaði á hljóðið í pen- ingakassa í einni verzlun sinni, varð honum að orði: „Þetta er yndislegasta hljóð á jarðríki“. Líklega er Mao ekki á sama máli þar. FV 7 1971 15

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.