Frjáls verslun - 01.07.1971, Side 29
breidd, mesta halla, minnstu
beygjur og ákveðin gæði yfir-
borðslagsins, en láti verktök-
um eftir að finna út, hvar veg-
urinn á að liggja til þess að
ódýrasta heildarniðurstaða fá-
ist.
Það er mín skoðun, að miklu
líklegra sé, að verktaki fylgist
vel með öllum nýjungum í
vegagerð en opinber stofnun.
Þegar verktakar fara að keppa
um verkin, þá verða þeir að
notfæra sér nýjustu og beztu
tækni og aðferðir, eigi þeir að
vera samkeppnisfærir. í opin-
berri stofnun er hætta á, að
talsverðrar tregðu gæti gagn-
vart nýjungum, ekki vegna
þess, að stofnunin fylgist ekki
með tækninýjungum, heldur
vegna þess, að allar mjög stór-
ar opinberar stofnanir eru
svifaseinar og auk þess háðar
fjárlögum og löngum athugun-
um margra aðila utan stofnun-
arinnar.“
2/3 OLÍUMÖL
Við spyrjum Birgi Frímanns-
son nánar um framtíð vega-
gerðar. „Mér sýnist það vera
olíumölin, sem nú er að ,,slá í
gegn“ í íslenzkri vegagerð,“
segir hann. „Nú er unnið að
gerð hraðbrauta frá Elliðaám
til Selfoss, sem er um 53 kíló-
metrar, og frá Reykjavík til
Kollafjarðar, sem er um 16
kílómetrar. Af þessum 69 kíló-
metrum verða tveir þriðju
hlutar lagðir olíumöl.“
Tölur um skiptingu:
Steinsteypa 5 km
Asfalt 20 km
Olíumöl 44 km
„Nú eru nýkomin til lands-
ins ný og mjög fullkomin tæki
frá Svíþjóð til blöndunar á
olíumöl, sem sveitarfélögin á
Reykjanesi og þrír verktakar
hafa keypt. Eins og oft áður
eru það hér verktakar, sem
hafa haft frumkvæðið um
nýjungar.
Fyrirtækið Véltækni h.f.
byrjaði tilraunir með olíumöl
á árunum 1965-66 og hefur
safnað þeirri reynzlu við ís-
lenzkar aðstæður, sem nú er
byggt á.
Almenna byggingaf élagið h.f.
mun fyrst hafa beitt nýjustu
tækni og jarðýtum og mokst-
ursskóflum við lagningu hluta
Sóleyjargötu. Þessi undirbygg-
ing hefur reynzt svo vel, að
Sóleyjargatan er enn ein bezta
asfaltgata borgarinnar.
Þegar hafizt var handa við
AÐEINS FLUGVELIN FÆR
BETRI ÞJONUSTU EN
FARÞEGARNIR
SÍMl 11422
CUDO
GLER
FV 7 1971
27