Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1971, Page 41

Frjáls verslun - 01.07.1971, Page 41
tekið eftir því að þeir voru eins. Þetta hafði haft í för með sér mikinn og óþarfan auka- kostnað. GEC-Elliot, hefur notað hóp- tækni við framleiðslu stjórnun- ar-spjalda. Það er aðeins helm- ingur verksmiðjunnar sem kom- inn er undir kerfi, en fram- leiðslutíminn hefur minnkað úr 63 dögum niður í 18 og óaf- greiddar pantanir hafa minnkað um 45%. Ferodo er eitt bezta dæmið um hagkvæmni hóptækni, sem til er í Bretlandi. Ferodo fram- leiðir bremsuborða, og hafði miklar áhyggjur af kostnaði. O- afgreidd verkefni voru alltof mikil, og það sem. alvarlegra var, fyrirtækið átti í erfiðleik- um með að afgreiða nógu fljótt pantanir til bifreiðaiðnaðarins. íhugað var að byggja sérstaka verksmiðju til að stytta af- greiðslutímann, en í stað þess var ákveðið að reyna hóptækni, og hún gaf svo góða raun að öll framleiðsla var sett undir það kerfi. Ferodo hafði 25 mismunandi hráefnablöndur og 150 mismun- andi radiusa á bremsuborðum. Úr þessu voru skorin 3.500 grundvallarsnið, sem gerðu samtals 17000 skráðar stærðir, og gerðir. Teikningin af verk- smiðjunni áður en hóptækni var tekin upp, sýnir hvaða leið dæmigerður bremsuborði fór áður en hann komst á markað- inn. Teikningin sýnir líka leið- ina sem fimm aðrar gerðir borða (valdir af handahófi) fóru. Megnið af gólfrýminu í þessum tveim verksmiðjum fór undir verkefni-í-augnablikinu, sem söfnuðust við vélarnar. Niðurröðun vélanna var reynd- ar ekki alveg eins hlægileg og hún lítur út fyrir að vera. Þeim var raðað eftir gerðum þeirra: Allar borvélar saman, allar möl- unarvélar saman o.s.frv. En eft- ir að hafa skipað öllum vöru- flokkum sínum í fiölskyldur og gefið þeim nafnnúmer, gat Fer- odo breytt niðurröðun vélanna. Það var gert þannig að fjórtán vélar voru í hverri samstæðu, og hver einstök þeirra vann eitt- hvað það verk sem þurfti til að fullgera bremsuborðann. Vélarnar voru tengdar með færiböndum Efnið kemur inn og gengur frá vél til vélar. Vélasamstæðunni eða hópnum væri líklefra réttara að segia, fylcia auðvitað menn, og þeim er skipt niður í sex manna hópa, sem fara frá einni vél á aðra eftir því sem verkið gengur, því þeir hafa verið þjálfaðir í meðferð þeirra allra, Hver hóp- ur skilar sínu verkefni fullfrá- gengnu. Fjármagnið sem bundið er í verkefnum-í-augnablikinu, hef- ur minnkað um sjö áttundu, og pantanir eru afgreiddar á ein- um áttunda þess tíma sem það áður tók. Vegna þess að skjót- ur afgreiðslutími var nauðsyn- legur, var beinu starfsliði ekki fækkað, en hins vegar þurfti færri eftirlitsmenn og færri skrifstofumenn. Eftir að hafa le.yst þetta meg- invandamál, fór Ferodo að hyggja að öðrum liðum fram- leiðslunnar, og koma hóptækn- inni í gagnið þar, t.d. við vinnslu hráefnanna og árangur- inn varð hinn sami. Alls staðar þar sem það var hægt, voru notaðar þær vélar sem til voru fyrir, en þó þurfti óhjákvæmilega að fjárfesta í nýjum vélum. Niðurstaðan varð sú að á þeim 18 mánuðum sem það tók að koma hóptækninni á, var fjárfestin í vélum einum þriðja meiri en hún hefði ann- ars verið. En verkefni-í-augna- blikinu, minnkuðu margfalt um leið og það gerði meira en vega upp á móti fjárfestingunni. Það urðu óhjákvæmilega nokkrir árekstrar við verk- smiðjufólkið. Þegar fyrsta hóp- tækni-lina verksmiðjunnar var sett upp, var fengið sérstakt fólk til að manna hana og það var launamismunur og bónus- mismunur milli þess og starfs- liðsins sem fyrir var. Ferodo hélt fundi með starfsliði sínu, og útskýrði fyrir því hvað var að gerast. Fólkið sannfærðist um að hvorki kaup þess né at- vinna væri í hættu, og sættir tókust. Það hefur verið sannað að hóptækni bætir lygilega all- an rekstur fyrirtækja í mörg- um og mismunandi greinum. Svo fremi sem aðrir framleið- endur hætta að blekkja sjálfa sig með því að þeir noti nú þeg- ar eitthvað því líkt, á hóptækni mikla framtíð fyrir sér og líka mörg fyrirtæki sem annars yrðu kannske að leggja upp laupana. FV 7 1971 39

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.