Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.08.1971, Blaðsíða 6
ISLAÍ\ID AlþingS Alþingis- menn fá nú þokkaleg laun - Hvað þá ráðherr- arnir Til skamms tíma var alþing- isseta tiltölulega lágt metin í launum, og þaS svo, að stund- um hafa hugsanlegir fram- bjóðendur orðið að hugsa sig um, hvort þeim væri fjárhags- lega kleift að setjast á Alþingi. Forsœtisráðherra fœr 122 þús. í budduna mánaðarlega á nœsta ári. En nú er þetta liðin tíð, og má segja að nýkjörnir alþingis- menn, sem setjast að störfum í haust, fái fyrstir íslenzkra þingmanna þokkaleg laun. Þingseta er nú metin launa- lega sem aðalstarf en ekki sem aukastarf. Það er svo annar handleggur, að nú ætti um leið að mega gera meiri kröfur til alþingismanna um að stunda þingið og taka virkan þátt í daglegum störfum þess. Það var eitt af síðustu verk- um Alþingis fyrir þinglausnir í vor. að samþykkja launahækk- un til alþingismanna. Mánaðar- laun þingmanns voru hækkuð úr 32.000 í 46.570. en þeir fá eftir sem áður greiddan ýmsan kostnað, einkum þó þingmenn utan Reykjavíkur. Með hækk- uninni í vor var samþykkt önn- ur breyting, sem felur það í sér, að starfsmenn ríkisins eða ríkisstofnana, sem sitja á þingi og stunda ekki störf sín nema á milli þinga, fá einungis 3/10 hluta árslauna, auk þingfarar- kaupsins, en 3/5 ef þeir stunda störf sín með þingsetunni. Ef hins vegar viðkomandi launar staðgengla sína, fá þeir það endurgreitt. Launaskerðingar- reglan gildir ekki um ráðherra, en á þessu ári eru laun for- sætisráðherra 59.500 á mánuði og annarra ráðherra 55.000 hvers um sig á mán. Ráðherra- launin hæfcka um næstu áramót og aftur 1. júlí á næsta ári, og fær forsætisráðherra þá 76.- 000 en hver hinna 70.000. Allar þessar launatölur eru grunntöl- ur, án vísitöluuppbóta. Það má þannig segja, að þótt þolanlegt sé orðið að taka þing- mannslaun með tilheyrandi kostnaðargreiðslum, sé það hé- gómi miðað við að taka líka ráðherralaun, en eins og fram kemur hér á undan eru ráðherr- arnir komnir með samtals yfir 100.000 á mánuði hver, og eiga þó eftir að fá dulitla hækkun enn. Eftir 1. júlí 1972 fær Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra þannig 122.570 krónur í grunn- laun á mánuði. auk ýmis konar kostnaðar, en ráðherrarnir Ein- ar Ágústsson, Halldór E. Sig- urðsson, Lúðvík Josefsson, Magnús Kjartansson, Hannibal Valdimarsson og Magnús Torfi Ólafsson 116.570 kr. og svipað- ar sporslur og forsætisráðherra, sem og raunar alþingismennirn- ir allir fá að einhverju leyti. Verzlun Samstarf samtakanna Fyrir nokkru hófust skipu- legar viðræður um nánari sam- vinnu og endurskipulagningu samtaka í viðskiptalífinu, en í þeim taka þátt fulltrúar frá Verzlunarráði íslands, Félagi ís- lenzkra stórkaupmanna, Kaup- mannasamtökum fslands, fjór- um stærstu sérgreinafélögunum í verzlun, svo og Félagi ís- lenzkra iðnrekenda. Sveinn Björnsson verkfræðingur skipu- lagði fundahöld og viðræður fyrir þessa aðila. Upphaflega var ætlunin að efna til við- ræðna sérstaklega um nánara samstarf varðandi húsnæði og Hús Félags íslenzkra stórkaup- manna i Tjarnargötu. almennan rekstur samtakanna. Endanlega var hins vegar ákveðið, að ræða jafnframt um hugsanlega endurskipulagningu samtakanna, einkum með það fyrir augum að styrkja þau út á við í baráttu fyrir hags- munamálum þeirra, sem að við- skiptum starfa. Snúast viðræð- urnar því um tvö náskyld en þó aðskilin viðfangsefni. Búizt er við því, að viðræðum þessum 6 FV 8 1971

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.